Hollt, gott og algjör snilld!

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hollt, gott og algjör snilld! Hér erum við með geggjað kúskús salat úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is.

„Kúskús er æðislegt hráefni sem að mínu mati er notað allt of sjaldan! Það er hægt að leika sér með þá á ýmsa vegu, hvort sem það er að útbúa salat úr því líkt og hér er gert eða hafa það sem meðlæti með öðrum mat,“ segir Bergind um þessa dýrindis uppskrift.

Sumarlegt kúskús salat

Fyrir 3-4

Kúskús

  • 200 g Til hamingju kúskús
  • 300 ml kjúklingasoð
  • ½ agúrka
  • ½ rauðlaukur
  • 15 kirsuberjatómatar
  • 2 eldaðar kjúklingabringur
  • Sítrónudressing (sjá uppskrift að neðan)
  • Graslaukur til skrauts

Aðferð:

  1. Hitið kjúklingasoðið að suðu, slökkvið á hellunni og hrærið kúskús saman við. Setjið lokið á pottinn og leyfið að standa í 8-10 mínútur.
  2. Skerið agúrku, rauðlauk og tómata niður ásamt kjúklingabringunum.
  3. Losið kúskúsið varlega í sundur með gaffli og blandið öllu saman í skál.
  4. Hellið dressingu yfir salatið og njótið.

Dressing

  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 sítróna, safinn
  • 1 rifið hvítlauksrif
  • 1 tsk. oregano
  • ½ tsk. laukduft
  • 1 tsk. salt
  • ¼ tsk. pipar

Aðferð:

  1. Hrærið öllu saman og hellið yfir kúskús salatið.
  2. Ef þið viljið bæta frekari sósu saman við þá er gott að nota Hellmann‘s Ceasar salad dressingu.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert