„Einbeitum okkur að því að vera með allt upp á tíu“

Ari Þór Gunnarsson þjálfari liðsins
Ari Þór Gunnarsson þjálfari liðsins Ljósmynd/Klúbbur matreiðslumeistara

Klúbbur matreiðslumeistara, sem á og rekur kokkalandsliðið, hefur valið landsliðshópinn sem tekur þátt í næsta heimsmeistaramóti í matreiðslu. Fremstu matreiðslumenn heims munu þyrpast til Lúxemborgar í nóvember 2022 þar sem mótið verður haldið. Hópur sem valinn hefur verið samanstendur af reynsluboltum í keppnismatreiðslu og öflugum nýliðum, öll með mikinn metnað til að ná langt í faginu.

Ari Þór Gunnarsson er þjálfari liðsins en hann hefur mikla reynslu af keppnum og þjálfun fyrir þær. „Hópurinn er öflugur og verkefnið spennandi, í krefjandi keppni eins og heimsmeistaramóti eru mörg atriði sem hafa áhrif á lokaniðurstöðuna. Það er verkefni mitt og hópsins að einbeitta okkur að því að vera með allt upp á tíu,“ sagði Ari þegar hann var spurður hvernig verkefnið legðist í hann. Hópurinn hefur þegar hafið æfingar og mun æfa stíft næstu 18 mánuði. 

„Að keppa fyrir Íslands hönd með íslenskt hágæðahráefni í forgrunni er ótrúlega spennandi og hlýtur að vera draumur hvers matreiðslumanns,“ segir Ísak Aron landsliðsmaður en þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann æfir fyrir stórmót því hann var meðlimur í kokkalandsliðinu sem náði þriðja sætinu á Ólympíuleikunum í Stuttgart í febrúar á síðasta ári.   

Hópurinn samanstendur af þessu níu matreiðslumönnum:

  • Aron Gísli Helgason Rub 23 
  • Gabríel Kristinn Bjarnason aðstoðarmaður Bocuse d'or
  • Garðar Aron Guðbrandsson mötuneyti Símans
  • Erla Þóra Bermann Pálmadóttir Fjallkonan 
  • Ísak Aron Jóhannsson Lux veitingar og Sælkerabúðin
  • Ísak Darri Þorsteinsson Lux veitingar og Sælkerabúðin
  • Jakob Zarioh Baldvinsson Sumac 
  • Sindri Guðbrandur Sigurðsson Héðinn Kitchen & Bar
  • Sveinn Steinsson mötuneyti Eflu verkfræðistofu

„Það verður spennandi að fylgjast með þessum hópi næstu mánuðina,“ segir Þórir Erlingsson, forseti klúbbs matreiðslumeistara. Það að fylgjast með metnaðarfullum matreiðslumönnum vinna með íslenskt hráefni og þróa rétti sem eiga möguleika á stóra sviði keppnismatreiðslunnar væri ekki hægt nema fyrir velvilja styrktaraðila okkar bætir Þórir við. Kokkalandsliðið heldur úti síðum á samfélagsmiðlum sem og heimasíðu.  

Á Instagram er það icelandicculinaryteam á Facebook er það Kokkalandsliðið og heimasíðan er www.kokkalandslidid.is

Ljósmynd/Klúbbur matreiðslumeistara
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert