Fengu ofurvinsælan bætiefnasérfræðing til að hanna nýja drykki

Thelma Matthíasdóttir.
Thelma Matthíasdóttir.

Lemon hefur í samstarfi við Telmu Matthíasdóttur, eiganda Bætiefnabúllunnar og fitubrennsla.is, þróað fjóra nýja drykki sem innihalda allir prótein og eru sagðir stútfullir af fyrsta flokks hráefni.

Telma hefur lengi verið á meðal vinsælustu einkaþjálfara landsins og unnið markvisst að því að bæta líf og heilsu landsmanna. Aðspurð segir hún að það hafi aldrei verið spurning um að taka þátt í þessu sumarlega verkefni með Lemon. „Á Lemon fæ ég þá orku og næringu sem ég þarf fyrir líkamann. Auk þess er ég dugleg að sækja þangað mat fyrir starfsfólk Bætiefnabúllunnar því góð næring gefur ekki bara góða orku heldur bætir hún alla starfsemi líkamans og lífið.“

Nú er komið að því að Sælkerasjeikar Telmu hafa litið dagsins ljós á Lemon. Þetta eru fjórir próteinsjeikar hver öðrum bragðbetri, sumarlegri og fádæma góðir fyrir heilsuna. Þeir kallast Pink Magic, Home Run, Happy Time og Call me Crazy og eru allir stútfullir af fersku, fyrsta flokks hráefni frá Lemon og próteini frá Bætiefnabúllunni. Allir eru sjeikarnir macros vænir fyrir þá sem vilja telja kolvetni, prótein og fitu. Það gerist ekki betra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert