Sjúkleg pítsa með fetaosti og spínati

Ljósmynd/María Gomez

Það er meistari María Gomez á Paz.is sem á heiðurinn að þessari snilld. Hér erum við að tala um pítsu sem er sem klæðskerasniðin að þeim sem elska fetaost og aðrar lífsins lystisemdir. María segir pítsuna afar einfalda og deigið þurfi ekki að hefast. 

„Ef þið elskið fetaost og spínat og allt sem er Miðjarðarhafs þá eigið þið eftir að elska þessa pizzu sem er möst að toppa eftir á með hunangi og bera fram með gúrkujógúrtsósu,“ segir María.

Ljósmynd/María Gomez

Grísk flatbrauðspizza með fetaosti og spínati

Botninn 

  • 270 g fínt spelt frá MUNA 
  • 1 tsk. fínt salt 
  • 1 msk. hrásykur frá MUNA 
  • 1 msk. vínsteinslyftiduft 
  • 350 g grísk jógúrt 

Álegg 

  • 150 g spínat 
  • 200 g fetaostakubbur (ekki í olíu ná vatni)
  • Rifinn mozzarella eða ferskur mozzarella þið megið ráða (ég notaði rifinn í poka)
  • 1 tsk. sítrónusafi
  • 2 hvítlauksrif 
  • MUNA extra virgin ólífuolía 
  • ferskt rósmarín 
  • MUNA kasjúhnetur 
  • Gróft salt
  • svartur pipar

Gúrku jógúrtsósa

  • 350 g grísk jógúrt 
  • 1 msk. MUNA akasíuhunang  
  • 1/2 gúrka 
  • 1-2 tsk. gróft salt 
  • pipar 
  • MUNA akasíuhunang til að setja á pizzuna eftir á!

Aðferð

Botninn 

  1. Setjið þurrefnin saman í skál og hrærið með skeið.
  2. Bætið næst jógúrtinni út í og hrærið vel saman.
  3. Setjið svo á borð með spelti ofan á og hnoðið og bætið við spelti eins og þarf þar til deigið hættir að klístrast við fingur og borð.
  4. Fletjið deigið næst út með kökukefli en það má alveg vera smá þykkt og þarf að passa á pönnu.
  5. Steikið báðum megin á stórri grillpönnu eða steikarpönnu þar til það eru komnir brúnir flekkir í það eins og á flatbrauði.
  6. Færið svo botninn á smjörpappír ofan á bökunarplötu en það má rúlla aftur yfir það hér með kökukefli og kremja það betur út svo það verði þynnra og stærra, ekki hafa áhyggjur ef það er hálfhrátt því það á eftir að fara í ofninn.
  7. Setjið svo ólífuolíu yfir botninn ásamt hvítlauk sem er skorinn í örþunnar sneiðar og saltið með grófu salti yfir og stráið svo rifnum eða ferskum mozzarella-osti í þunni lagi yfir (ekki of mikið).
  8. Setjið smá Muna-ólífuolíu á pönnu og setjið svo spínatið út í heita olíuna og saltið og piprið. 
  9. Þegar spínatið er helmingi minna en það var setjið þá 125-150 gr. (ca. hálfur kubbur) af fetaostinum ásamt sítrónusafanum út á og látið bráðna rétt svo saman.
  10. Takið svo af pönnuni og dreifið jafnt ofan á pizzabotninn með olíunni og hvítlauknum og mozzarella-ostinum á og dreifið smá meira af köldum fetaosti yfir ásamt ferskum rósmaríngreinum og kasjúhnetum.
  11. Setjið svo smá meiri ólífuolíu yfir allt saman og stingið í 200° C heitan ofninn með blæstri í 10-15 mín.
  12. Berið svo fram með jógúrtsósunni og MUNA akasíuhunangi til að setja ofan á pizzuna en ég lofa það er rosa gott.

Jógúrtsósan 

  1. Meðan pizzan er í ofninum gerið þá sósuna.
  2. Hrærið jógúrtina upp og setjið salt, pipar og hunang út í.
  3. Raspið svo hýðið af hálfri gúrku út í og bara rétt innan við hýðið svo að sósan verði ekki blaut. Hún á að vera þykk.
  4. Hrærið svo vel saman og geymið í kæli þar til pizzan er til og berið fram með henni.
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert