Kleinuhringirnir sem ættu að vera ólöglegir

Ljósmynd/Veganistur

Haldið ykkur nú fast. Hér erum við með uppskrift að fylltum kleinuhringjum sem eru algjört sælgæti. Og hvað haldið þið ... þeir eru vegan og það er ekki möguleiki að þið finnið það á bragðinu.

Það eru hinar ástsælu Veganistur sem eiga þessa uppskrift en þær eru snjallari en flestir að búa til veganmat sem er algjör lostæti.

Ljósmynd/Veganistur

„Það er ekkert betra, að mér finnst, en að eyða frídögum og helgum í að baka eitthvað gómsætt. Sérstaklega þegar ég næ að útbúa eitthvað svo einstaklega gott með einföldum hætti. Þessir fylltu kleinuhringir eru án efa ein af þeim uppskriftum sem líta út fyrir að vera flóknar en eru svo bara furðu einfaldar þegar maður lætur vaða,“ segja þær Helga María og Júlía Sif og við hvetjum ykkur til að prófa þessa snilld.

Ljósmynd/Veganistur

Fylltir kleinuhringir

  • 4 dl plöntumjólk

  • 100 g smjörlíki

  • 1 tsk. vanilludropar

  • 1 bréf þurrger

  • 8-10 dl hveiti

  • 1 dl sykur

  • 1 tsk. salt

  • 2 l olía til steikingar

  • Súkkulaðifylling:

    • 2 pakkar violife-súkkulaðismyrja

    • 2-3 msk. plöntumjólk

 

Aðferð:

  1. Hitið mjólkina og smjörlíkið saman í pottið þar til smjörlíkið er alveg bráðnað. Leyfið blöndunni að kólna þar til hún er sirka 37°C (blandan á einungis að vera volg eða við líkamshita, ekki heit)

  2. Hellið mjólkinni í stóra skál, bætið vanilludropum út í og stráið þurrgerinu ásamt 1 msk. af sykri yfir. Leyfið þessu að standa í um 5-10 mínútur eða þar til vökvinn fer að freyða.

  3. Blandið restinni af þurrefnunum saman við. Best er að byrja á því að setja 8 dl af hveiti og bæta síðan við ef deigið er of blautt.

  4. Hellið deiginu á hreint borð og hnoðið í nokkrar mínútur. Setjið aftur í skál með viskustykki eða plastfilmu yfir og leyfið því að hefast í um klukkustund.

  5. Skiptið deiginu í tvo hluta. FLetjið annan hlutann út í einu þar til það er u.þ.b. 1 cm að þykkt,

  6. Skerið út hringi en notið tvenns konar stærðir af glösum til að gera annars vegar stóra hringi og hins vegar svona „mini“-útgáfu. Í stóru notaði ég hefðbundið vatnsglas en skotglas í þá minni.

  7. Leggið viskastykki yfir og leyfið þeim að hvíla á meðan þið hitið olíuna.

  8. Hitið olíuna í stórum potti. Mér finnst gott að athuga hvort olía sé tilbúin með því að setja smá bút af afgangsdeigi út í og sjá hversu fljótur hann er að bakast. Lítill bútur á að fá gullitaða áferð á einungis nokkrum sekúndum. Olían á að vera um 180°C og ef þið eigið mæli til að mæla hitann er það að sjálfsögðu fullkomið.

  9. Steikið kleinuhringina í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Takið þá upp úr og leggið á disk með eldhúsbréfi á svo restin af olíunni fái að leka í bréfið.

  10. Leyfið kleinuhringjunum að kólna á meðan þið hrærið saman súkkulaðismjörinu og plöntumjólkinni þar til það verður fallega mjúkt og slétt.

  11. Stingið gat í hliðina á hverju kleinuhring og notið sprautupoka til að sprauta fyllingunni inn í þá. Passið að kleinuhringirnir séu alveg kaldir þegar þið setjið fyllinguna inn í.

 

Ljósmynd/Veganistur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert