Fékk uppskriftina hjá sjúklingi sínum

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir
Ragnar Freyr Ingvarsson læknir

Hinn eini sanni Læknir í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson, deilir hér uppskrift sem er sem klæðskerasniðin að þeim sem elska að leika sér í eldhúsinu.

„Þessa uppskrift fékk ég hjá einum af sjúklingunum mínum. Stundum þegar formlegaheitum er lokið er spjallað um lífið og tilveruna og margt ber á góma. Ég fæ og gef ráð um mat og matseld og oft fæ ég sendar til mín hugmyndir um skemmtilegar og spennandi uppskriftir.

Ég myndi geta heimilda, en þá væri ég að rjúfa trúnað við sjúklinginn minn. Það besta sem ég get gert er að þakka einstaklingi sem býr á eyju skammt frá meginlandinu - bestu þakkir fyrir þessa frábæru uppskrift. Þú veist hver þú ert! Bragðlaukaveisla - kjúklingalæri með parma, pistacíuhnetum, Västerbottenosti og píkkoló tómötum á aspasbeði.“

Kjúklingalæri með parma, pistacíuhnetum, Västerbottenosti og píkkoló tómötum á aspasbeði

Handa fimm

  • 10 úrbeinaðuð kjúklingalæri
  • 3 egg
  • 4 msk. hveiti
  • 2 bollar brauðraspur
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1/2 tsk. chiliduft
  • olía til steikingar
  • salt og pipar
  • 2 búnt aspas
  • 2 box pikkolótómatar
  • 5 sneiðar parmaskinka
  • handfylli pistasíuhnetur
  • 75 ml hvítvín
  • 75 g Västerbottenostur
  • jómfrúarolía
  • handfylli basil
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Best er að hefja leika með hafa þrjár skálar, eina fyrir hveiti, næstu fyrir eggin og þá síðustu fyrir brauðmylsnuna.
  2. Byrjið á því að leggja lærin í fat, saltið og piprið.
  3. Veltið lærunum svo upp úr hveiti, bragðbættu með hvítlauksdufti, chili, salti og pipar. Dustið af umfram hveitið. Hrærið egg og veltið lærunum upp úr eggjablöndunni. Færið svo lærin yfir í brauðmylsnuna og hjúpið vel.
  4. Steikið lærin í 1-2 mínútur á hvorri hlið.
  5. Leggið aspasinn í ofnskúffu, sáldrið smá jómfrúarolíu yfir, saltið og pipar og hellið hvítvíni yfir. Leggið kjúklingalærin ofan á aspasinn.
  6. Sáldrið Västerbottenostinum ofan á kjúklinginn.
  7. Piccolótómatar eru sælgæti. Skerið þá í tvennt og og dreifið yfir kjúklingalærin. Leggið sneiðar af parmaskinku ofan á hvert læri.
  8. Svo pistasíunum.
  9. Þetta er eins og listaverk! Bakið í 180 gráðu heitum ofni í 20 mínútur eða svo.
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert