Kjúklingarétturinn sem fær tíu í einkunn!

mbl.is/Eyþór Rúnarsson

Meistarakokkurinn Eyþór Rúnarsson heldur áfram að heilla okkur upp úr skónum með matseld sinni og hér er á ferðinni kjúklingabringa með núðlusalati. Algjörlega geggjaður réttur sem skilgreinist sem skyldusmakk.

Bökuð kjúklingabringa í heimalagaðri teriyaki-sósu með núðlusalati

Uppskriftin er fyrir 4

Teriyaki-sósa 

  • 100 ml vatn 
  • 100 ml sojasósa  
  • 3 msk. hrísgrjónaedik  
  • 55 gr. döðlur 
  • 1 hvítlauksgeiri (gróft skorinn)
  • 30 gr. engifer (fínt rifið) 
  • 2 msk. hunang  

Setjið allt hráefnið nema hunangið í pott og sjóðið við væga suðu í 30 mín.

Bætið hunanginu út í og maukið allt saman með töfrasprota. 

 Bakaðar kjúklingabringur í teriyaki-sósu

  • 4 stk. kjúklingabringur 
  • 2/3 af teriyaki-sósunni 

Veltið bringunum upp úr sósunni og látið þær standa í henni í ca. 5 tíma.

Setjið bringurnar í eldfast mót og inn í 150°C heitan ofn í 50 mín. eða þar til þær hafa náð 73°C í kjarnhita. Takið þær svo út úr ofninum og setjið álpappír yfir bringurnar og látið þær standa í 15 mín. áður en þær eru bornar fram. Skerið bringurnar svo í þunnar sneiðar og berið fram með afganginum af teriyaki-sósunni.

 

Núðlur í sesam-sojadressingu með brokkolí, gulrótum, papriku og rauðlauk

  • 50 ml sojasósa 
  • 2 msk. hunang
  • 2 msk. hrísgrjónaedik
  • 50 ml sesamolía 
  • 100 ml olífuolía 
  • 1 hvítlauksrif 
  • 1/3 bréf kóríander

Setjið allt saman í matvinnsluvél og maukið saman.

 

Núðlur 

  • 250 gr. eggjanúðlur 
  • 300 gr. gulrætur (skrældar og smátt skornar)
  • 1 haus brokkolí (smátt skorið)
  • 1 stk. rauð paprika (kjarnhreinsuð og skorin í þunna renninga)
  • 1/3 stk. rauðlaukur (fínt skorinn)
  • ½ bréf kóríander (gróft skorinn)
  • Ólífuolía til steikingar
  • Sjávarsalt 
  • Svartur pipar úr kvörn

Hitið pönnu með vel af ólífuolíu og steikið allt grænmetið á miðlungshita í 10 mín. eða þar til grænmetið er eldað í gegn og kryddið með salti og pipar. Sjóðið núðlurnar eftir leiðbeiningum á pakka. Hellið vatninu af núðlunum og setjið þær á pönnuna með grænmetinu. Slökkvið á hitanum undir pönnunni og bætið 2/3 af dressingunni út á ásamt kóríandernum og blandið vel saman. Berið restina af dressingunni fram með núðlunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert