Útilegunestið sem fullkomnar ferðalagið

Ljósmynd/Omnom

Hér er á ferðinni ein snjallasta nýjung sem sést hefur hér á landi í háa herrans tíð. Við erum að tala um Smores pakkann frá Omnom.

„Okkur langaði að færa íslenskum ferðalöngum smá bandaríska útilegumenningu beint í æð. Við föndruðum því saman smá “S´mores Kit” til þess að hjálpa Íslendingum að taka útilegustemninguna hér landi upp á næsta stig,“ segir Ásgeir Höskuldsson, markaðsstjóri Omnom.

„S´mores er í raun og veru mjög einföld uppfinning/uppskrift. Þú byrjar á því að létt grilla sykurpúða, mjög heitar og skiptar skoðanir eru um hversu mikið eða lítið skal “brenna” sykurpúðann. Þú brýtur svo niður súkkulaðið og klemmir það ásamt grillaða sykurpúðanum á milli tveggja kex kaka. Úr verður gómsæt blanda sem er fullkomið að njóta með fjölskyldu og vinum í sumar. Einhvers konar útilegu eftirréttar samloka.“

Omnom S´mores kassinn inniheldur hið sívinsæla Caramel súkkulaðistykki, ásamt fjórum sykurpúðum, átta hafrakexkökum frá Brauð & Co og svo fjórir bambus prjóna. Allt sem þú þarft til að búa til fjórar gómsætar s´mores-lokur í útilegunni.

Ljósmynd/Omnom
Ljósmynd/Omnom
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert