Krakkasnakkið sem slegið hefur í gegn

Ljósmynd/Sun Raisin

Gott krakkasnakk er eitt það mikilvægasta í vopnabúri foreldra – þá ekki síst á ferðalögum. Það er því eðlilega mikið gleðiefni þegar nýtt snarl lítur dagsins ljós og hér erum við að tala um eina þá mestu snilld sem sést hefur lengi. Við erum að tala um rúsínur með náttúrulegum ávaxtabragðefnum þannig að útkoman verður ávaxtarúsína!

Notaðar eru úrvalsrúsínur frá Sun Raisin sem bragðbættar eru með náttúrulegum bragðefnum með ávaxtabragði. Enginn viðbættur sykur, engin erfðabreytt hráefni, engin litarefni, gerviefni eða glúten.

Það er því ljóst að litlir fingur eiga eftir að gleðjast yfir þessum bráðsniðugu rúsínum enda full ástæða til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert