Bæta merkingar á mjólkurfernum til að minnka matarsóun

Ljósmynd/MS

Mjólkursamsalan hefur tekið mörg skref í umhverfismálum á undanförnum árum og einbeitir sér meðal annars að minnkun á matarsóun. MS merkir nú mjólkurfernurnar Best fyrir – oft góð lengur til þess að hvetja til minni matarsóunar.

Að sögn Guðnýjar Steinsdóttur, markaðsstjóra Mjólkursamsölunnar, hafa sambærilegar merkingar gefið góða raun í nágrannalöndum okkar, meðal annars í Noregi þar sem þær hafa mælst mjög vel fyrir.

„Merkingin „Best fyrir“ merkir í raun lágmarksgeymsluþol matvæla og gefa þessar merkingar frekar til kynna gæði en öryggi matvæla. Matvörur sem eru merktar með „best fyrir“ eru oft í lagi eftir þá dagsetningu svo lengi sem lykt og bragð er í lagi og ef varan hefur verið geymd rétt.  

MS hvetur neytendur til að draga úr matarsóun og bendir á heimasíðu Umhverfisstofnunar þar sem mikið er af leiðbeiningum og hugmyndum fyrir neytendur. Á síðunni kemur meðal annars fram munurinn á geymsluþolsmerkingunum „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ og þar eru neytendur hvattir til að nota nefið til að meta hvort varan sé í lagi eftir „best fyrir“-dagsetninguna."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert