Langbesta hreinsiefnið fyrir sturtuklefann

mbl.is/Lauren Volo

Leitin að hinu fullkomna hreinsiefni fyrir baðherbergið er fundin – en uppskrift að blöndunni fer hamförum á meðal þrifspekúlanta þarna úti. Hér ræðir um blöndu úr efnum sem þú átt með öllum líkindum uppi í skáp og kostar því mun minna en önnur búðarkeypt efni, fyrir utan að það virkar stórkostlega að sögn þeirra sem hafa prófað. Blandan losar um alla sápu og önnur óhreinindi sem safnast fyrir á flísunum í sturtunni.

Uppskrift að hinu fullkomna sturtuspreyi

  • 2 bollar edik
  • 1 bolli uppþvottalögur
  • 20 dropar Tea tree-olía
  • Blandið öllu saman í spreybrúsa og þrífið að vild. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert