Notar leikfang til að búa til sælgæti

Svokallaðir „Pop-it-fiktarar
Svokallaðir „Pop-it-fiktarar" eru notaðir í þessa súkkulaðigerð. Mbl.is/@mumof5staysane

Kona nokkur notar vinsælt leikfang til að búa til súkkulaðimola  og svona fer hún að því!

Krakkar þessa dagana eru æstir í að leika sér með svokallaða „pop-it-fiktara“, litríkt sílikonleikfang þar sem tilfinningin er að þú sért að skjóta bóluplasti þegar þú ýtir á hnappana inn og út – en leikfangið má finna í verslun HÉR á landi. Leikfangið á að hafa róandi áhrif og auka einbeitingu. Og kona nokkur á TikTok hefur fundið önnur not fyrir leikfangið með því að nota það sem mót fyrir súkkulaði.

Hún byrjar á því að raða smarties-hnöppum í formið. Síðan bræðir hún um 100 g af mjólkursúkkulaði og sama magn af hvítu súkkulaði sem hún hellir yfir mótin og setur inn í frysti  og eftir nokkra tíma er einfalt að smella súkkulaðinu úr forminu. Hér er þó mikilvægt að benda á að ganga alltaf úr skugga um hvort þau form sem þú notar þoli matvöru og fyrir alla muni þrífið mótin vel fyrir notkun.

Mbl.is/@mumof5staysane
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert