Grillað taco með salsa og sterkri sósu

Ofsalega girnilegt fiskitaco með sumarlegu salsa og dressingu.
Ofsalega girnilegt fiskitaco með sumarlegu salsa og dressingu. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér býður Hildur Rut okkur upp á grillað fiskitaco, borið fram með sumarlegu salsa og jalapenjo-sósu sem gælir við bragðlaukana. Réttur sem þú vilt alls ekki missa af!

Grillað taco með salsa og sterkri sósu

(fyrir 3-4, ég mæli með 3 litlum tortillum á mann)

  • 500 g þorskhnakkar
  • Safi úr 1/2 lime
  • 1-2 msk. Krónukrydd – Ertu ekki að grænast?
  • 1 msk. ferskt kóríander
  • 1 tsk. cumin
  • 1 msk. ólífuolía
  • Litlar tortillur – Street taco frá Mission
  • Stappaður fetaostur (salatostur eftir smekk)

Ananas salsa

  • ¼ – ½ ferskur ananas
  • 2 avókadó
  • 10 kokteiltómatar
  • 1 msk. kóríander
  • Safi úr ½ lime
  • Salt & pipar eftir smekk

Einföld jalapeno-sósa

  • 2 dl majónes (einnig gott að setja smá sýrðan rjóma)
  • 1-2 msk. jalapeno úr krukku
  • Salt & pipar

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera fiskinn í bita eftir smekk og blandið saman í skál við safa úr lime, Krónukryddinu – Ertu ekki að grænast, cumin og ólífuolíu.
  2. Skerið ananas, avókadó, kokteiltómata og kóríander smátt. Blandið öllu saman, kreistið lime yfir og saltið og piprið.
  3. Blandið saman majónesi, smátt söxuðu jalapeno, salti og pipar eða setjið í töfrasprotann/matvinnsluvél.
  4. Dreifið fiskinum á álbakka og grillið í 10 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn.
  5. Grillið tortillurnar á vægum hita og fyllið þær með salsanu, fiskinum og sósunni. Mmm…og njótið!
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert