Áleggið sem þykir það vinsælasta á ristað brauð

Ricotta þykir það vinsælasta ofan á ristað brauð nú til …
Ricotta þykir það vinsælasta ofan á ristað brauð nú til dags. mbl.is/Getty

Avókadó ofan á brauð getur farið að passa sig, því það er komin ný útfærsla sem fólk er að missa sig yfir – og hún er rjómakennd. Hér erum við að vitna í það allra heitasta þessi dægrin á ristuðu brauði, en svokölluð „avókadó toast“ hafa verið mjög vinsæl síðustu misserin. Í dag er það ricotta sem fólk smyr á brauðin og skreytir með hunangi, sultu, tómötum eða jurtum og þykir hreinasta lostæti.

Talið er að samfélagsmiðlar hafi átt stóran þátt í þessu nýja æði, því þessi útgáfa hefur farið víða, t.d. á TikTok. En það er ekki að ástæðulausu, því í samanburði við aðra osta er ricotta mun heilsusamlegri kostur sem inniheldur minna salt og fitu og meira prótín.

Hér fyrir neðan er uppskrift frá matreiðslukonunni Paolu Maggiulli, betur þekkt sem @thetinyitalian á Instagram.

Ristað brauð með ricotta og tómötum

  • Ólífuolía
  • 1 hvítlauksrif, saxað
  • 6 kirsuberjatómatar, skornir til helminga
  • 125 g ricotta
  • Sjávarsalt
  • Svartur pipar
  • Balsamik edik
  • 2 súrdeigsbrauðsneiðar
  • Fersk basilika

Aðferð:

  1. Steikið hvítlaukinn upp úr olíu í 1 mínútu.
  2. Bætið tómötunum út á pönnuna og stráið jafnvel smá chilli flögum yfir. Steikið á meðalhita þar til mjúkir. Veltið þeim þá upp úr 1 msk af balsamik edik og smá ólífuolíu. Stráið sjávarsalti yfir.
  3. Pískið upp ricotta ostinn með gaffli þar til mjúkur – saltið og piprið.
  4. Ristið brauðin.
  5. Dreifið ricotta yfir brauðin og setjið tómatblönduna ofan á. Skreytið með ferskri basiliku.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert