Hlaða gerð að öðruvísi veitingastað

Eigendur Sauðár við opnun veitingastaðarins, frá vinstri Kolbrún Dögg Sigurðardóttir, …
Eigendur Sauðár við opnun veitingastaðarins, frá vinstri Kolbrún Dögg Sigurðardóttir, Magnús Freyr Gíslason, Róbert Óttarsson og Selma Barðdal. Mbl.is/Finnur Þór Friðriksson

Veitingastaðurinn Sauðá var opnaður formlega á Sauðárkróki fyrir helgi og mættu fjölmargir bæjarbúar, sem og víðar að, til að fagna þessum nýja áfanga í veitingahúsaflóru bæjarins, ásamt eigendum og verktökum.
Það er einkenni áræðinna frumkvöðla og framkvæmdamanna að þeir sjá skemmtileg tækifæri, ef til vill með smábreytingum, frá því sem allir hinir hafa fyrir augunum hversdagslega.
Þannig fór það þegar arkitektinn og listasmiðurinn Magnús Freyr Gíslason flutti með eiginkonu sinni, Kolbrúnu Dögg Sigurðardóttur, aftur til Sauðárkróks eftir nokkurra ára fjarveru, að fljótlega vakti áhuga þeirra áratuga gömul hlaða, löngu aflögð sem slík, og hafði staðið ónotuð eða sem geymsla og í stökustu niðurníðslu, skammt frá Sauðánni í Sauðárgili.
Í tvö til þrjú ár var hugmyndin að gerjast hjá þeim hjónum en mjög fljótlega bættust í samstarfið hjónin Selma Barðdal og Róbert Óttarsson bakarameistari. Þar sem hugmyndin var nú að mestu mótuð var lítið annað í boði en að hefjast handa. Hér vildu þau opna veitingastað, sem væri öðruvísi en þeir staðir sem fyrir eru á Króknum. Fyrir tíu mánuðum fengu þau yfirráð yfir hlöðunni og þar með fór allt af stað.

Alls ekki að aðrir viti kostnaðinn

Þau segja að þrátt fyrir ýmsa erfiðleika vegna ástands í þjóðfélaginu hafi allar áætlanir staðist merkilega vel. Hlaðan stendur enn á sínum stað, en búið er að byggja við hana meðfram báðum langhliðum, mót suðri, rúmgóðan og vistlegan veitingasal. Að norðan er aðstaða starfsfólks, eldhús og lager. Við suður- og vesturhlið er stór og glæsileg verönd, þar sem njóta má veitinga á góðviðrisdögum.
Þeir Magnús og Róbert segja alla þá sem að framkvæmdinni komu hafa skilað verulega góðu verki og nefna þar til sögu Uppsteypuna ehf. sem annaðist alla steypuvinnu, Baldur múrara, Kára Björn pípara og Sigurð Ingimarsson og Tengil, sem annaðist raflagnir. Þá sá Þ. Hansen verktaki um alla jarðvegsvinnu. Hönnunarvinna var unnin af Magnúsi Frey, en Verkfræðistofan Stoð annaðist burðarþols- og lagnateikningar.
Auk þess komu að framkvæmdum ótaldir vinir og ættingjar sem lögðu hönd á plóg. Sammála eru þeir félagar um að þetta átak hafi hafst í gegn á þrjósku, elju og því að hafa gaman af hlutunum.
Þeir Magnús og Róbert voru að vonum býsna ánægðir með það að áfanga væri náð, og aðspurðir hvað þetta hefði nú kostað allt saman svaraði Róbert: „Við viljum helst ekki vita það, að minnsta kosti ekki alveg strax.“ Og Magnús bætti við sposkur: „Og alls ekki að aðrir viti það.“
Afgreiðslutími Sauðár er enn að mótast, það mun eitthvað ráðast af móttökum og verður þá líklega frá hádegi og eitthvað fram á kvöldið, jafnvel til miðnættis. Örugglega munu margir leggja leið sína í veitingahúsið Sauðá, þar sem engin eru bílastæðin, enda ekki ætlast til að neinn aki heim eftir rólegt og afslappað kvöld í góðu og vistlegu umhverfi.

Opnunarteiti Sauðár var vel sótt.
Opnunarteiti Sauðár var vel sótt. Mbl.is/Finnur Þór Friðriksson
Fyrir utan veitingastaðinn er stór og mikil verönd þar sem …
Fyrir utan veitingastaðinn er stór og mikil verönd þar sem gestir geta notið góða veðursins á Króknum. Mbl.is/Finnur Þór Friðriksson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert