Öskrandi ferskur Djúsí opnar á Blackbox

Ef það er eitthvað sem snillingarnir á Blackbox kunna betur en flestir þá er það að semja hressandi fréttatilkynningar og nú berast þau tíðindi úr þeirra herbúðum að búið sé að opna hinn nýja stað Djúsí sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu.

Djúsí er samloku- og safastaður sem er staðsettur í Borgartúninu þar sem Blackbox er til húsa en í fréttatilkynningu kemur fram að samlokurnar Dirty Dragon, Chrispy Duck og Sexy Panda bíði spenntar eftir því að vera smakkaðar en meðal þeirra djúsa sem verða á boðstólnum má nenfa Call again, Why we sleep og Mr. Mojito.

Að sögn Jóns Gunnars Geirdals, annars stofnenda Blackbox, er Djúsí „öskrandi ferskur samloku- og safabastarður, sprottinn úr nákvæmlega sömu hugmyndafræði og Blackbox."

„En þótt erfðaefnið sé það sama er þarna skýr aðgreining sem viðskiptavinir munu upplifa. Brauðið er einstakt og áleggið úr botnlausum sælkerabrunni Karls Viggós Vigfússonar, meistarabakara og stofnanda Blackbox,“ segir Jón Gunnar en fáir þekkja þennan bransa eins vel enda stofnaði hann Lemon árið 2013. 

„Það var þörf fyrir ferska djúsa og safaríkar samlokur í Borgartúninu og Djúsí er nákvæmlega það sem vantaði í hverfið. Frá upphafi hefur okkur á Blackbox langað að fara lengra með vörumerkið, prófa að flytja sælkeraerfðaefnið okkar yfir í aðra vöruflokka og Djúsí er þannig hluti af stærra verkefni og kemur inn á þennan markað með háleit markmið um að gera sérlega ljúffengar samlokur og geggjaða djúsa,“ segir Karl Viggó Vigfússon, stofnandi og yfirkokkur Blackbox. 

Karl Viggó hefur átt mikilli velgengni að fagna í veitingageiranum hér á landi frá því hann leiddi kokkalandsliðið á árum áður. Hann stofnaði meðal annars Omnom og Skúbb ísgerð, Blackbox, Héðins Kitchen & Bar og nú Djúsí. Karl Viggó segir að markmiðið sé alltaf að búa til bragðgóðan mat úr hágæðahráefni. „Samlokurnar eru svo með algjöru leynivopni sem fólk finnur þegar það bítur í stökkt brauðið. Ég vil ekki gefa upp hvað það er en það er svona tungutryllir sem fær þig til að vilja meira,“ segir Karl Viggó. 

Sömu sögu er að segja um djúsana en þar var markmiðið að til viðbótar við að vera einstaklega bragðgóðir þá myndu þeir hafa jákvæð áhrif á líkama og sál. Gott dæmi er Call again sem eins og nafnið gefur til kynna inniheldur kollagen, sem er gott fyrir húðina, eins og allir vita.

Djúsí er opið frá klukkan 10 til 21 alla virka daga og frá 12 til 21 um helgar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert