Ekta íslensk rjómaterta eins og á að gera hana

Ljósmynd/Salt Eldhús

Sirrý í Salt Eldhúsi er dugleg við að kynna íslenskar matarhefðir fyrir ferðamönnum sem koma til landsins og langar að fræðast um mat og menningu.

Sirrý segir að oftar en ekki berist talið að sætindunum og margir fari heim til sín með uppskriftir að ýmsu góðgæti eins og kornflextertu, sem Ameríkanar séu mjög spenntir fyrir. Hér er svo uppskrift að rjómatertu sem er mörgum gleymd en er ein af þeim tertum sem amma bakaði svo vel og mega ekki gleymast. Sannkölluð drottning á veisluborðinu.

Ekta íslensk rjómaterta

  • 4 egg 
  • 180 g sykur
  • 70 g kartöflumjöl
  • 70 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 60 g smjör brætt og kælt örlítið

Hitið ofninn í 200°C. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður ljós og létt. Besta útkoman verður ef eggin eru ekki köld og eggjamassinn er þeyttur saman í 5-10 mín. Sigtið kartöflumjöl, hveiti og lyftiduft út í og blandið varlega saman við með sleikju. Bætið vanilludropum og smjöri saman við. Það er ekki nauðsynlegt að hafa smjör í kökubotnunum en það gefur kökunni aukna mýkt.

Smyrjið eða setjið bökunarpappír í botninn á tveimur smelluformum, 22-24 cm í þvermál, þið getið notað þrjú form eins og er sýnt á myndinni en þá þurfa þau að vara minni eða 20 cm. Bakið botnana í 18-20 mín. og kælið. 

Fylling og skraut:

  • 1/2-3/4 l rjómi
  • 1 stór dós kokteilávextir (825 g) eða aðrir ávextir í dós

Þeytið rjóma. Sigtið safa frá ávöxtum og geymið hann. Leggið annan botninn á tertudisk og vætið vel í honum með safanum, það er lykilatriði að væta botnana vel svo kakan verði ekki þurr. Smyrjið svolitlu af rjómanum ofan á og dreifið 1/3 af ávöxtunum yfir. Leggið hinn kökubotninn ofan á, vætið í honum með ávaxtasafanum og þekið síðan alla kökuna með rjóma, ofan á og með hliðum. Skreytið með kokteilávöxtum eftir smekk. 

Ljósmynd/Salt Eldhús
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert