Sérvalin nautalund með béarnaise

Það þarf varla að fjölyrða um ágæti máltíðarinnar sem hér er fjallað um. Við erum að tala um sérvalda nautalund og þá miðhlutann sem alla jafna er talinn langbesti bitinn á nautinu. Með kjötinu er svo heimagerð béarnaisesósa, hasselback-kartöflur og ferskt sesarsalat með mozzarella.

Að laga béarnaisesósu frá grunni vefst fyrir mörgum enda lifir sú flökkusaga góðu lífi að erfitt sé að búa hana til. Það sem nauðsynlegt er að muna er að sósa sem skilur sig er alls ekki ónýt. Það eina sem þú þarft að gera er að þeyta upp nýja eggjarauðu og hella síðan blöndunni (sem skildi sig) hægt saman við og þeyta/píska á meðan. Flóknara er það ekki. Hlutföllin eru líka afar einföld. Ein eggjarauða saman við 100 g af bráðnu smjöri. Pískið eggjarauðurnar og hellið bráðnu smjörinu hægt saman við og pískið á meðan. Kryddað til með béarnaisekrafti og estragoni, smá salti og slettu af sítrónusafa. Hér er notast við hefðbundinn heimilisblandara en auðvitað má handþeyta/píska sósuna ef vill.

Nautalundin sjálf er svo annað mál. Almennt er talað um að trixið sé að leyfa náttúrulegu bragði kjötsins að njóta sín. Hér er einungis notast við SPG-kryddið frá Hagkaup sem er mjög einföld en um leið gróf blanda sem er sérstaklega heppileg með kjöti sem þessu. Hellið olíu yfir kjötið, kryddið og grillið síðan. Penslið með bbq-sósu og nýtið ykkur kjarnhitamæli ef þarf.

Hasselback-kartöflurnar eru sígildar og við mælum með að setja vel af olíu eða smjöri yfir þær áður en þær eru grillaðar og salta smá.

Salatið er síðan afar einfalt. Blandið saman salatblöðum, kirsuberjatómötum, mozzarellakúlum og sesarsalatsósu.

Bragðpallettan sem verður til er í algjörum sérflokki og fer þessi máltíð umsvifalaust í flokk með veislumáltíðum sem ber að endurtaka sem oftast enda bæði fram úr hófi bragðgóð og alls ekki svo flókin.

Sérvalin nautalund með béarnaise

  • Sérvalin nautalund – miðjuhluti
  • SPG-krydd
  • hasselback-kartöflur
  • Olio Nitti-olía
  • mozzarellakúlur
  • piccolo-tómatar
  • Lillie's Carolina BBQ sauce
  • Felix Caesar Dressing
  • salat
  • brauðteningar

Béarnaisesósa

  • 4 eggjarauður
  • 400 g smjör
  • 1 tsk. béarnaisekraftur
  • 1 tsk. estragon
  • salt eftir smekk
  • nokkrir dropar af sítrónusafa

Kjarnhiti í kjöti

  • nautakjöt – rautt (rare) = 55-60°
  • nautakjöt – meðalsteikt (medium) = 60-65°
  • nautakjöt – gegnsteikt (well done) = 65-68°

Munið

  • Það er best að elda nautakjöt þegar það er við stofuhita. Þess vegna er gott að taka það út úr ísskápnum minnst tveimur tímum áður en það er eldað.
  • Meyra nautasteik ætti ávallt að bera fram léttsteikta þannig að gæði kjötsins njóti sín sem best.
  • Algengast er að krydda nautakjöt einungis með salti og pipar til að leyfa bragðgæðum kjötsins að njóta sín.
  • Nautakjöt er ávallt grillað við snarpan hita og látið brúnast vel að utan, þar sem stór hluti af bragði góðrar nautasteikur liggur í því hversu vel brúningin heppnast.
  • Þegar nautasteikur eru steiktar í heilu lagi er best að láta þær hvíla í 10-15 mínútur eftir steikingu áður en þær eru skornar. Gott er að leggja yfir þær álpappír og viskustykki á meðan beðið er.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert