Lúxus lambaskankar í svívirðilega góðri sósu

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Það gerist ekki mikið betra en þetta gott fólk. Hér erum við með eina allsvakalegustu uppskrift sem sést hefur lengi. Við erum að tala um hægeldaða lambaskanka í rauðvínssósu sem þykir svo góð að leitun er að öðru eins.

Lúxus lambaskankar í svívirðilega góðri sósu

Lambaskankar

  • u.þ.b. 1 tsk. sjávarsalt
  • u.þ.b. ½ tsk. svartur pipar, nýmalaður
  • 4 stk. lambaskankar
  • 3-4 msk. ólífuolía
  • 3 rauðlaukar, afhýddir og skornir í tvennt
  • 2 rósmaríngreinar
  • 3 timjangreinar
  • 200 g sveppir, skornir gróflega
  • 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
  • 15 g smjör, ósaltað

Rauðvínssósa

  • 2 skalottlaukur
  • 1-2 msk. olía
  • 2 1/2 dl rauðvín eða krækiberjasaft
  • 2 rósmaríngreinar
  • 2 timjangreinar
  • 2 1/2 dl kjúklingasoð eða lambasoð
  • 1-2 msk. smjör
  • Sjávarsalt
  • svartur pipar

Aðferð:

Lambaskankar

  1. Hitið ofn í 150°C.
  2. Setjið salt og pipar yfir lambaskankana, látið í eldfast mót ásamt rauðlauk og kryddjurtum og hellið olíu yfir. Eldið í 1½–2 klst. eða þar til kjötið fellur auðveldlega af beininu.
  3. Hitið pönnu með 1 msk. af olíu og steikið sveppina í 5-6 mín., bætið við hvítlauk og smjöri, steikið áfram í 1 mín. og bragðbætið sveppina með salti og pipar.
  4. Berið lambaskankana fram með bakaða rauðlauknum, steiktu sveppunum og rauðvínssósu.
Rauðvínssósa
  1. Skerið skalottlaukinn smátt og steikið upp úr olíu í 3-4 mínútur.
  2. Bætið við rauðvíni, rósmarín og timjan og sjóðið niður um helming.
  3. Bætið við soði, sjóðið aftur niður um helming og sigtið svo frá kryddið og laukinn.
  4. Setjið sósuna aftur í pottinn, smakkið til með salti og pipar, bætið smjörinu við og hrærið vel þar til smjörið hefur bráðnað.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert