Chris Hemsworth fékk óvænta afmælisköku

Chris Hemsworth fagnaði 38 ára afmælinu sínu nú á dögunum.
Chris Hemsworth fagnaði 38 ára afmælinu sínu nú á dögunum. Mbl.is/Instagram_Chris Hemsworth

Hollywood leikarinn Chris Hemsworth, fékk heldur betur óvænta og persónulega köku frá krökkunum sínum á afmælisdaginn.

Chris þekkjum við til að mynda sem þrumuguðinn Þór í Marvel-myndunum frægu og það er bara alls ekkert leiðinlegt að horfa á manninn á skjánum - það verður að segjast. En hann birti á Instagram síðunni sinni, myndir af köku sem börnin hans þrjú bökuðu fyrir 38 ára gamla afmælispabbann. Kakan er vægast sagt sykruð! Hér má sjá lifandi eftirmynd af Chris á brimbretti, búinn til úr fondant. Og kakan sjálf er að sjálfsögðu með nóg af kertum og haug a sykurskrauti.

Í færslunni segir; „Takk fyrir allar afmælisóskirnar! Ég átti stórskemmtilegan dag með fjölskyldunni og tókst að borða 75% af þessari æðislegu köku sem börnin mín bjuggu til áður en þau hrundu í sykursjokk. Ég elska ykkur öll. Skál!“ Heldur betur vel lukkuð kaka ef þið spyrjið okkur – enda fátt betra en heimagerðar kökur, bakaðar af ást.

Mbl.is/Instagram_Chris Hemsworth
Stórglæsileg kaka!
Stórglæsileg kaka! Mbl.is/Instagram_Chris Hemsworth
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert