Grísk sparimús sem er fullkominn desert

Titill þessarar uppskriftar segir allt sem segja þarf. Grísk jógúrt er notuð í súkkulaðimús sem er borðuð með kornflekskurli sem geymir lakkrís. Uppskriftina má aðlaga endalaust að eigin þörfum; hafa ólíkar gerðir af súkkulaði, nota annað en gríska jógúrt, hafa annað kurl en gefið er upp, annað sælgæti…

Uppskrift: Halla Bára Gestsdóttir

Grísk sparimús sem er fullkominn desert

Mús:

  • 350 g grísk jógúrt, líka gott að nota mascarponeost eða rjómaost
  • 2 dl rjómi, þeyttur
  • 1 eggjarauða
  • 5 msk maple sýróp eða hunang
  • 2 tsk vanilludropar
  • 150 g súkkulaði, brætt*
  • 100 g rommý, saxað / after 8, rommkúlur, allt sem er fyllt og gefur af sér bragð**
  • 1 tsk rommdropar ef rommý eða rommkúlur eru notaðar

Hrærið saman eggjarauðu, sýróp og vanilludropa þar til létt og ljóst. Látið bráðið súkkulaðið kólna aðeins og hellið því svo í mjórri bunu saman við eggjablönduna og haldið áfram að hræra í á meðan.

Hrærið aðeins upp í jógúrtinni og mýkið hana. Setjið hana í nokkrum hlutum saman við súkkulaðieggjablönduna og blandið vel. Þá fer þeytti rjóminn saman við og áfram skal blanda vel saman en frekar rólega svo músin sé létt í sér.

Ef þið kjósið að nota Rommý í músina; saxið súkkulaðið og blandið því saman við hana. Ef þið viljið meira rommbragð má setja rommdropa saman við hana á því stigi þegar eggin eru þeytt.

*Þessi mús ber alls kyns súkkulaði, allt frá dökku upp í hvítt.

**Ef þið kjósið að nota After Eight í músina; saxið súkkulaðið og blandið því saman við hana. Ef þið viljið meira myntubragð má setja myntudropa eða líkjör saman við hana á því stigi þegar eggin eru þeytt.

***Ef þið kjósið annað bragð í músina er ykkar valið af endalausum möguleikum

Kurl:

  • 140 g sýróp
  • 150 g súkkulaði, dökkt, ljóst eða hvítt
  • 70 g smjör
  • 100 g kornflakes eða rice krispies
  • 100 g lakkrískurl

Bræðið saman sýróp, súkkulaði og smjör á vægum hita, hrærið. Blandið kornfleksi saman við, hrærið. Setjið lakkrískurl saman við og hrærið.

Dreifið úr blöndunni á smjörpappír og látið hana kólna og taka sig.

Samsetning:

Músina er hægt að bera fram í skálum, glösum eða einni stórri skál. Hún er sett í lög og fallegt að bera hana fram í glæru svo sjáist í lögin.

Kurl, mús, kurl og mús. Eins og þið kjósið. Skreytið með berjum, meira sælgæti, rifnu súkkulaði, flórsykri. Setjið aðeins í kæli áður en músin er borin fram.

Ef þið notið ekki alla músina þá er gott að geyma hana í kæli í góðu boxi því hún endist í nokkra daga. Kurlið sömuleiðis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert