Lambakótilettur eins og þær gerast bestar

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Lambakjöt er sannkallað sælgæti eins og við þekkjum og vel elduð lambakótiletta slær flestu við. Hér erum við með grillaðar lambakótilettur með ótrúlega skemmtilegri kryddblöndu og sýrðum rauðlauk.

Grillaðar lambakótilettur með kryddblöndu og sýrðum rauðlauk

  • 1,2 kg lambakótilettur
  • 240 ml hrein jógúrt
  • 1 tsk. svartur pipar, nýmalaður
  • 1 tsk. kóríander, malaður
  • 1 ½ tsk. kummin
  • 1 tsk. paprika
  • ½ tsk. kanill
  • ½ tsk. kardimomma
  • 1-2 tsk. sjávarsalt
  • 1 rauðlaukur, skorinn í mjög þunnar sneiðar
  • ½ hnefafylli steinselja, söxuð smátt
  • ½ hnefafylli kóríander, skorinn smátt
  • 1 ½ msk. sítrónusafi, nýkreistur
  • 2 tsk. sumac
  • 60 g heslihnetur, ristaðar, afhýddar og skornar gróft

Aðferð:

  1. Setjið jógúrt, svartan pipar, kóríander, kummin, papriku, kanil og kardimommu í stóra skál og blandið. Þerrið lambið og saltið á báðum hliðum. Veltið kjötinu upp úr kryddleginum, setjið filmu yfir skálina og kælið í a.m.k. 2 klst. eða allt að 12 klst.
  2. Blandið rauðlauk, steinselju, kóríander, sítrónusafa og sumac í skál ásamt örlitlu salti, látið til hliðar þar til fyrir notkun. Látið kjötið standa við stofuhita í 1 klst. fyrir eldun.
  3. Hitið grill á miðlungsháum hita. Penslið grillið með olíu og grillið lambið í u.þ.b. 3 mín. á hvorri hlið og látið hvíla í 5-10 mín. áður en það er borið fram. Setjið kjötið á fat, stráið heslihnetum yfir, berið fram með rauðlaukssalati og aukameðlæti að eigin vali.
Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert