Rétturinn fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt

Æðislega girnilegur réttur í boði Snorra Guðmunds.
Æðislega girnilegur réttur í boði Snorra Guðmunds. mbl.is/Matur og myndir

Hér er réttur fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt í eldhúsinu  dúnmjúkar bao-bollur með hægelduðum rifnum grís, sesamsalati og japönsku majó. Það er Snorri hjá Mat og myndum sem býður okkur í þessa girnilegu veislu.

Rétturinn fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt (fyrir 2)

  • grísahnakki í sneiðum, 400 g
  • baobrauð, 6 stk / fást frosin hjá Fiska á Nýbýlavegi
  • rauðkál, 150 g
  • kóríander, 5 g
  • agúrka, 100 g
  • ristuð sesamfræ, 1 msk 
  • radísur, 2 stk
  • japanskt majó, 60 ml
  • kewpie-sesamdresssing, 45 ml / fæst í Melabúðinni
  • gochujang, 1 msk
  • sojasósa, 1 msk
  • engifermauk eða rifinn ferskur engifer, 1 tsk 
  • hvítlaukur, 1 rif
  • kjúklingakraftur, 1 tsk 
  • hrísgrjónaedik, 1 tsk

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 150°C með yfir- og undirhita.
  2. Hrærið gochujang saman við sojasósu, engifermauk, 1 pressað hvítlauksrif, kjúklingakraft og hrísgrjónaedik. 
  3. Nuddið gochujangblöndunni vel á kjötið, leggið kjötið svo í lítið eldfast mót og hellið botnfylli af vatni (ekki of mikið) í mótið. Bætið restinni af gochujangblöndunni (ef það var afgangur) út í vatnið og hyljið mótið því næst með álpappír.
  4. Bakið kjötið í miðjum ofni í 2-2,5 klst eða þar til það losnar auðveldlega í sundur þegar togað er í það með tveimur göfflum. Gott er að kíkja á kjötið þegar tíminn er hálfnaður og bæta við ögn af vatni ef þarf.
  5. Notið tvo gaffla til þess að tæta kjötið niður í eldfasta mótinu og látið liggja í nokkrar mín. í krydduðum vökvanum. Smakkið til með salti ef þarf.
  6. Hitið baobollurnar eftir leiðbeiningum á umbúðum eða hitið í um 30 sek. í örbylgjuofni þar til þær eru heitar og mjúkar. 
  7. Sneiðið rauðkál eins þunnt og mögulegt er, helst með mandólíni (farið varlega!). Saxið kóríander. Setjið rauðkál, kóríander og sesamdressingu saman í skál og blandið vel saman.
  8. Sneiðið agúrku og radísur í þunnar sneiðar. Raðið sesamsalati, kjöti, japönsku majó og sesamfræjum í brauðin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert