Rjómalagað pasta með leynihráefni sem kemur á óvart

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Bragðgóður og öðruvísi pastaréttur sem kemur skemmtilega á óvart, svo ekki sé meira sagt! Sósan er látin bullsjóða svo áfengið sýður að mestu leyti í burtu en eftir stendur spennandi undirtónn eða keimur sem gefur réttinum nýstárlegt bragð.

Höfundur þessar uppskriftar er Helena Gunnarsdóttir sem gefur þessari uppskrift ótvíræðan gæðastimpil.

Rjómalagað vodka pasta

  • 3 skammtar
  • 300 g pasta, t.d. penne eða rigatoni
  • 2 msk. smjör
  • 1 stk. lítill laukur, smátt saxaður
  • 2 stk. hvítlauksrif, smátt söxuð
  • 1 dl vodka
  • 1 dós hakkaðir tómatar
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 250 ml rjómi frá Gott í matinn
  • rifinn Óðals Tindur eftir smekk
  • salt, pipar og chili flögur, eftir smekk
  • fersk basilíka, má sleppa

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningum á pakka.
  2. Bræðið smjör á pönnu og steikið lauk og hvítlauk þar til mýkist.
  3. Kryddið með salti, pipar og chilliflögum.
  4. Hækkið hitann og hellið vodkanu yfir, leyfið að sjóða í 1-2 mínútur.
  5. Bætið þá tómatmaukinu og tómatpúrrunni út á ásamt rjómanum.
  6. Leyfið að malla í 5 mínútur þar til þykknar aðeins og smakkið til með salti, pipar og chiliflögum.
  7. Bætið soðnu pastanu út á pönnuna og blandið vel saman.
  8. Toppið með vel af rifnum Óðals Tindi og e.t.v. ferskri basilíku.
  9. Berið fram strax með rifnum Óðals Tindi.
Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert