Svona kemur þú í veg fyrir að það sjóði upp úr

Hvað er það besta í stöðunni þegar vatnið byrjar að …
Hvað er það besta í stöðunni þegar vatnið byrjar að sjóða upp úr pottunum? Mbl.is/TikTok_Rajmin2025

Hvað gerum við til að sporna við því að vatnið í pottunum, sjóði upp úr? Jú, þá finnum við lausnina og deilum henni hér með ykkur.

Þegar við sjóðum vatn í potti og setjum lokið á, þá sýður vatnið upp úr og út á helluborðið í 99% tilvika. Þá þarf ekki að leita lengra en inn á TikTok til að fá réttu svörin við vandanum, en „tokkari“ nokkur sýnir hvernig má á auðveldan máta forðast slíkt vesen. Þú einfaldlega setur þvottaklemmur hringinn í kringum lokið og lætur það standa á klemmunum á meðan þú eldar. Þvottaklemmur virðast vera lausn við fleiri en einum vanda.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Þvottaklemmur eru lausn við fleiri en einum vanda!
Þvottaklemmur eru lausn við fleiri en einum vanda! Mbl.is/TikTok_Rajmin2025
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert