Bestu bökuðu kartöflurnar fylltar með osti

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Já, haldið ykkur fast því hér erum við með bakaðar kartöflur í keppnisflokki. Sneisafullar af osti og majónesi enda af tékknesku bergi brotnar.

Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari tímamótasnilld sem er algjört „möst“ að prófa.

Linda frænka spurði hvort hún ætti ekki að gera „lútmílu“ í kartöflurnar þegar við vorum að grilla fyrir norðan í sumarfríinu. Ég vissi ekki hvað hún var að tala um en sagði bara já, ég er til! Þá hafði vinkona hennar frá Tékklandi gert þetta fyrir þau fyrir einhverjum árum og hún notað hugmyndina frá henni síðan þá. Ég hef aldrei fengið svona áður og þetta er algjör snilld í bakaða kartöflu, nammi namm!

Ég hef oft séð skafið innan úr kartöflum, þær fylltar og síðan bakaðar aðeins aftur en þetta er svo handhægt og sniðugt svona!

Ostafylltar kartöflur „Lútmíla“

  • 100 g sýrður rjómi frá Gott í matinn
  • 70 g majónes
  • 30 g rjómi frá Gott í matinn
  • 2 hvítlauksrif
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  • 100 g rifinn Cheddar ostur frá Gott í matinn
  • 100 g rifinn Mozzarella ostur frá Gott í matinn

Aðferð:

  1. Pískið saman sýrðan rjóma, majónes, rjóma, hvítlauksrif, salt og pipar.
  2. Blandið síðan báðum tegundum af osti saman við og geymið í kæli fram að notkun.
  3. Skerið kross í bakaða kartöflu og leyfið vel af „lútmílu“ að bráðna ofan í hana.
  4. Hægt er að bjóða upp á bakaða kartöflu á þennan máta með hvaða kjöti, sósu og öðru meðlæti sem hugurinn girnist.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert