Bestu fréttir ársins af Lucky Charms

Pastellituðu sykurkoddarnir frá General Mills eru aftur væntanlegir og í …
Pastellituðu sykurkoddarnir frá General Mills eru aftur væntanlegir og í nýjum umbúðum. Mbl.is/General Mills

Við erum alls ekki þau einu sem fagna nýjustu fréttum frá General Mills, sem hafa tilkynnt að varan þeirra „Just Magical Marshmallows“ sé væntanleg aftur á markað.

Um er að ræða morgunkorn sem inniheldur einungis sætu sykurpúðana sem við þekkjum svo vel úr Lucky Charms pökkunum og kom fyrst á markað árið 2015 – en hefur verið tekið tímabundið af markaði annað slagið í gegnum árin. Það sem þykir þó mest spennandi eru umbúðirnar utan um litríku sykurkoddana sem finnast í átta mismunandi formum; Hjarta, stjarna, skeifa, smári, blátt tungl, regnbogi og sem rauð blaðra. Allt smakkast þó eins á bragðið og fyllir ekki bara magann, heldur líka sálina af gleði við það eina að sjá alla pastellitina í morgunverðarskálinni. En það væri einstaklega gaman að fá að smella þessum sykurpúðum með í einhverskonar bakstur – við erum nokkuð viss um að það myndi slá í gegn í öllum barnaafmælum.

Mbl.is/General Mills
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert