„Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt“

Granólabarinn var opnaður í ágústlok í gamalli verbúð úti á Granda. Þar hefur myndast mjög vegleg og skemmtileg matarmenning en þar fyrir má finna The Coocoos Nest, blómabarinn Lúnu Flórens, Valdísi, Kjötkompaní og Omnom, auk íslenskra hönnunarverslana og BOHO sem selur ýmislegt huggulegt til heimilishaldsins.

Tobba Marinós og mamma hennar Guðbjörg Birkis standa að Granólabarnum sem hefur slegið rækilega í gegn en þar er líklega kominn eini bar landsins sem selur einungis kræsingar sem eru gerðar án viðbætts sykurs eða sætuefna. „Þetta er því barinn sem mamma þín vill að þú farir á,“ segir Tobba sem er í skýjunum með viðtökurnar.

Staðurinn selur meðal annars kaldpressaða djúsa, orkuskot, kökur, kókoskúlur og „nicecream“ sem er ís gerður einungis úr frosnum ávöxtum og hnetumjólk.

„Ég viðurkenni að þetta er búið að vera langt og erfitt ferli að opna hér en nú loksins erum við að uppskera. Ég er ekki menntaður kokkur né iðnaðarmaður svo ég er að læra margt nýtt. Við mamma stöndum hér vaktina, pabbi erindast, Kalli maðurinn minn sér um tækjamál, systir mín sem er búsett í London var flutt inn og tjóðruð við djúsvélina og einhvern veginn gengur þetta allt upp þótt dagarnir séu vissulega langir,“ segir Tobba.

Hún segist hafa staðið í Krónunni eftir lokun með hárnet og svuntu og snúist í hringi því hún mundi ekkert hvað hún ætlaði að kaupa á leiðinni heim. „Ég hef alveg litið betur út þótt ég sé í góðu líkamlegu formi af hollustufæðunni og öllum hlaupunum í vinnunni. Eva Laufey vinkona mín kom í heimsókn með blásið hár á háum hælum og varalit. Ég bað hana vinsamlegast að drulla sér út. Ég stóð sveitt með hárnet og bananaklessur í andlitinu á bak við afgreiðsluborðið, þrútin af litlum svefni og með náladofa í höndunum,“ segir Tobba og skellihlær.

„En án gríns þá á ekki að vera auðvelt að stofna fyrirtæki. Það má vera erfitt. Ég á svo mikið af góðu fólki að að mér er ekki vorkunn. Á meðan Kalli skilur ekki við mig er ég hamingjusöm. Hann þvær strigaskóna mín á kvöldin eftir að ég er sofnuð og sér svo vel um dætur okkar að ég myndi breyta nafninu mínu í Kalli ef það væri ekki skrítið.“

Tobba segir að hún hafi nýlega uppgötvað að það sé hægt að fá sinadrátt í hendurnar. „Það er lítt hugguleg reynsla. Og er afkvæmi tennisolnboga og golfolnboga. Ég handgeri sum sé hvern ís í hverja einustu skál með tilheyrandi handadrama. Ég þarf að láta lækka borðið sem ég geri ísinn á áður en einhver hringir á lögguna næst þegar ég öskra af kvölum á nóttunni – hvað gerir maður ekki fyrir heilsu þjóðarinnar? Sem betur fer kemur elskulegur eiginmaðurinn með hitakrem og íbúfen svo ég hef fulla trú á að þetta gangi yfir. Byrjunardrama er alltaf hressandi.“

Flugvélamótor og banani

Hún segir „nicecream“ ekki hafa fengist hérlendis áður en landsmenn séu að tryllast yfir þessari nýjung og flestir komi dag eftir dag. „Það er svo mikill óþarfi að borða sykurbombur þegar eitthvað sem er hollt og gott getur verið betra á bragðið en sykursprengjurnar. Auðvitað er allt í lagi að fá sér óhollustu af og til en það á að vera frávik – ekki venjan. Sumir hafa spurt mig ítrekað hvort það sé í alvörunni bara ferskur banani sem við setjum í ísinn en já, það er málið og blandarinn er mjög öflugur, með flugvélamótor.“

Þær mæðgur hafa selt handgert granóla í verslunum síðastliðin tvö ár og er það granóla hjartað í flestum réttum þeirra á Granólabarnum. „Þetta er í raun lifandi tilraunaeldhús. Hér prófa ég alls konar uppskriftir sem fara svo í framleiðslu og í verslanir ef þær slá í gegn. Ég er til dæmis að lita kókosinn sem við notum til að skreyta kókoskúlurnar með ofurdufti á borð við bláa spírúlínu, rauðrófuduft og túrmerik. Þannig fæ ég „sprinkles“ sem er ekki bara sykurlaust heldur meinhollt. Dropi af rauðrófusafa litar jógúrtið okkar skærbleikt og við skreytum með ætum blómum og frostþurrkuðum ávöxtum. Ef það er ekki í lit þá er það leiðinlegt!“

Tobba ásamt móður sinni, Guðbjörgu Birkis.
Tobba ásamt móður sinni, Guðbjörgu Birkis.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert