Ekta frönsk terta með brómberjum og hnetum

Ekta frönsk galette með berjum og hnetum.
Ekta frönsk galette með berjum og hnetum. mbl.is/Georg Jensen Damask

Hér er gómsæt tertuuppskrift úr smiðju Georg Jensen Damask, þar sem enginn annar en stjörnukokkurinn Mikkel Karstad á heiðurinn. Ekta frönsk galette með brómberjum og heslihnetum – eða fullkomin sunnudagskaka.

Ekta frönsk terta með brómberjum og heslihnetum

Deig

  • 100 g mjúkt smjör
  • 175 g hvítt hveiti
  • 50 g hafrar
  • 50 g sykur
  • 30 g hakkaðar heslihnetur
  • Klípa af salti
  • Smá vatn til að koma deiginu saman

Fylling

  • 500 g brómber
  • 1 lífræn sítróna
  • 2 msk flórsykur
  • 3 greinar timían
  • Smá flórsykur
  • 200 ml hrein jógúrt
  • ½ vanillustöng
  • 1 msk acacia hunang

Aðferð:

  1. Setjið smjörið í skál og hnoðið hveiti, sykur, hafra og hakkaðar hneturnar út í smjörið.
  2. Bætið salti og smá vatni saman við til að koma deiginu saman og gera það sveigjanlegt.
  3. Setjið deigið í kæli í 30 mínútur, þá verður auðveldara að vinna með það.
  4. Skolið brómberin í köldu vatni og setjið í skál.
  5. Veltið deiginu út í hring á bökunarpappír, mjög þunnt – sirka 26-28 cm í þvermál.
  6. Setjið brómberin á mitt deigið og stráið fínt röspuðum sítrónuberki yfir, ásamt smátt söxuðu timían og flórsykri.
  7. Brjótið brúnirnar  upp yfir fyllinguna þannig að brúnirnar haldi öllu saman.
  8. Setjið galettuna inn í ofn og bakið í 20-25 mínútur við 170°, þar til fallega gyllt að ofan og skorpan er orðin stökk.
  9. Hrærið vanillunni saman við hunangið, sítrónusafa og jógúrtina til að búa til kremið.
  10. Takið galettuna úr ofni og látið kólna örlítið. Stráið þá flórsykri yfir og berið fram með vanillukreminu.
mbl.is/Georg Jensen Damask
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert