Lasagnað sem kemur þér í opna skjöldu

Ljósmynd/Helga Magga

Hér erum við með geggjaða uppskrift að grænmetislasagna sem er fullkomin fyrir þá sem elska hollan og góðan mat. Pastalengjurnar eru úr baunum sem þýðir að lítil sem engin kolvetni eru í réttinum. Það er Helga Magga sem á þessa uppskrift sem þið megið til með að prófa.

„Það er ekkert eins haustlegt og gott lasagna. Í þennan rétt notaði ég edamame- og mungbauna pastalengjur frá Explore cuisine sem fást í Hagkaup, Fjarðarkaup og Melabúðinni. Pastalengjurnar eru próteinríkar og því tilvalið að nota þær í grænmetislasagna til að auka próteinmagnið í réttinum. Í þennan rétt er sniðugt að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum hverju sinni og ekkert mál að sleppa einhverju innihaldsefni eða bæta við uppskriftina,“ segir Helga Magga um uppskriftina.

Grænmetislasagna

Uppskriftin er fyrir um 5-6 fullorðna.

  • 2-3 hvítlauksrif
  • 120 g laukur (einn laukur)
  • 1 matskeið olía
  • 200 g gulrætur
  • 160 g sveppir (6-8)
  • 200 g spergilkál
  • 240 g nýrnabaunir (1 dós)
  • 1 lúka fersk basilika (eftir smekk)
  • 1 msk. grænmetiskraftur
  • 200 ml vatn
  • 500 g pastasósa
  • 130 g tómatpúrra
  • 500 g kotasæla
  • 150-200 g edamame- og mungbauna pastalengjur, fer eftir stærð á fati sem þú notar, (ég notaði 200 g).
  • 120 g rifinn ostur
  • Salt, pipar, hvítlaukskrydd, chilli krydd, oregano, timían um 1 tsk. af hverju kryddi.

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera lauk og hvítlauk smátt og steikja upp úr olíunni, blandið 1 mtsk af grænmetiskrafti út í 100 ml af vatni og hellið út á pönnuna. Gott er að vera búinn að skera grænmetið smátt niður og bæta því út á pönnuna, kryddið og steikið þar til grænmetið er farið að mýkjast. Eftir um 5 mínútur er pastasósunni bætt útá ásamt nýrnabaununum, tómat púrrunni og basilikunni og látið malla áfram við miðlungs hita í 5-10 mínútur. Kotasælunni er svo bætt út á pönnuna og slökkt undir.
  2. Takið stórt eldfast mót og byrjið á að setja þunnt lag af grænmetissósunni í botninn, svo er helmingnum af pastalengjunum raðað ofaná, svo aftur grænmetissósa, svo annað lag af pastalengjum, þriðja lagið af grænmetissósunni og að lokum er osturinn settur ofaná, mér finnst gott að hafa tvö lög af pastalengjunum en það má alveg bæta við þriðja laginu en það fer sennilega eftir stærð á eldfasta mótinu sem þú notar.
  3. Rétturinn er hitaður við 190 gráður í 30 mínútur í blástursofni.
  4. Ef þú setur þennan rétt inn í myfitnesspal hjá þér sem uppskrift er mikilvægt að muna að vigta réttinn eftir að hann kemur út úr ofninum og muna að draga þyngdina á fatinu frá lokatölunni.

Næring í 100 g

Kolvetni: 5,5 g

Prótein: 8,6 g

Fita: 2,7 g

Trefjar: 3,5 g

Ljósmynd/Helga Magga
Ljósmynd/Helga Magga
Ljósmynd/Helga Magga
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert