Kvöldverðurinn sem krakkarnir elska

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Við sögðum frá því að dögunum að komnir væru á markað svokallaðir vefjuvasar sem gera Mexíkó-kvöldin ennþá skemmtilegri (og mögulega ögn minna subbuleg). Hér er það engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem útbýr uppskrift sem krakkarnir elska!

„Það var að koma svo mikil snilld á markaðinn frá Old El Paso, en það eru svona „vefjuvasar“! Þetta er í raun eins og mjúk tortilla nema núna þarf ekkert að hugsa um að brjóta upp á öðrum megin eða hafa áhyggjur af því að eitthvað leki út úr vefjunni því það er bara hægt að hrúga ofan í vasann og njóta áhyggjulaust!“ segir Berglind og við tökum heilshugar undir það.

Vefjuvasar með kjúklingi

12 stykki/fyrir 4-6 manns

  • 12 stykki Old El Paso Tortilla Pockets
  • 4 kjúklingabringur
  • 12 sneiðar stökkt beikon
  • kál
  • avókadó
  • tómatar
  • laukur
  • rifinn ostur
  • Old El Paso-nachos flögur (muldar)
  • kóríander
  • Old El Paso-tacosósa
  • sýrður rjómi
  • ólífuolía
  • salt, pipar, hvítlauks- og paprikuduft

Aðferð:

  1. Byrjið á því að merja kjúklingabringurnar niður með kökukefli/buffhamri svo úr verði þynnri stykki og nokkuð jöfn á þykkt.
  2. Steikið kjúklingabringurnar næst upp úr ólífuolíu við háan hita í 1-2 mínútur á hvorri hlið þar til þær brúnast vel. Lækkið þá hitann og setjið lokið á pönnuna, leyfið að malla í 6-8 mínútur og snúið einu sinni, hvílið bringurnar svo á meðan annað er útbúið því þá verða þær safaríkari. Skerið síðan niður í þunnar sneiðar.
  3. Skerið þá stökkt beikon niður ásamt öllu grænmeti.
  4. Hitið vefjuvasana samkvæmt leiðbeiningum á pakka, smyrjið sýrðum rjóma og tacosósu inn í hvern vasa og fyllið með kjúklingi, osti, grænmeti og muldum nachosflögum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert