Draumkennd nostalgía Helle Mardahl

Helle Mardahl er danskur listamaður sem skapar glervörur sem eiga …
Helle Mardahl er danskur listamaður sem skapar glervörur sem eiga sér engan líkan. Mbl.is/@alastairwiper

Það er ólýsanlegt að heimsækja verslun og vinnustofu Helle Mardahl, sem tekur mann með í ævintýranlegt ferðalag þar sem glervörur segja alla söguna. Það fengum við að upplifa af eigin raun fyrir ekki svo löngu síðan er við kíktum  í heimsókn á vinnustofu og verslun Helle, í hjarta Kaupmannahafnar.

Helle Mardahl er danskur listamaður sem skapar glervörur sem eiga sér engan líkan. Vörurnar eru ekki bara litríkar og leikrænar, heldur afskaplega myndrænar líka. Hún útskrifaðist úr Central Saint Martins í London, sem listamaður og hönnuður, þar sem verk hennar einkennast af glæsileika með dálítlum húmor. Helle heillast mikið af fegurð andstæðna sem endurspeglast í litríkri sköpun fyrir heimilið og gleðja svo sannarlega augað.  

Morgunverðurinn smakkast eflaust betur með þessu matarstelli.
Morgunverðurinn smakkast eflaust betur með þessu matarstelli. Mbl.is/@alastairwiper

Nýjasta vörulína hennar kallast „The Diner Dream“ og er draumkenndur heimur af litríkum glervörum til daglegra nota við matarborðið, sem og til skrauts. Hér er nostalgían sem tekur völdin, og minningar úr barnæsku má glögglega lesa í gegnum glansandi glerið og töfrandi drauma – eins og augljóslega má sjá á meðfylgjandi myndum. En þess má geta að Helle er gift breska ljósmyndaranum Alastair Philip Wiper, sem hefur fengið ómælda athygli víða út í heimi fyrir einstakar ljósmyndir og þar á meðal myndirnar sem við sjáum hér.

Það er líka gaman að segja frá því að vörurnar frá Helle Mardahl eru fáanlegar hér á landi í versluninni VEST. Svo fyrir áhugasama, þá má bera vörurnar augum án þess að bóka ferð til Kaupmannahafnar.

Hversu góð stemning að drekka kokteil úr þessum glösum.
Hversu góð stemning að drekka kokteil úr þessum glösum. Mbl.is/@alastairwiper
Mbl.is/@alastairwiper
Mbl.is/@alastairwiper
Mbl.is/@alastairwiper
Mbl.is/@alastairwiper
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert