Helgarkjúklingurinn sem hittir í mark

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Það er alltaf tilefni til að fá sér góðan kjúklingarétt og hér er uppskrift frá Guðrúnu Ýr á Döðlur & smjör sem er algjör snilld.

„Mig langaði í kjúklingarétt með aspas bragði án þess að freista þess í búðinni að fá góðan aspas, því það er ekkert alltaf gefið. Úr varð þessi dásamlegi réttur.

Mér finnst bragðið af aspas svo gott í brauðréttum eins og flestum íslendingum og þessi kjúklingaréttur daðrar dálítið við hann á samt svo ólíkan hátt, erfitt að lýsa því. Hann bragðaðist alveg dásamlega og fékk glimrandi einkunnir og ég mæli svo sannarlega með að þið prófið þennan!“

Kjúklingur í aspas & sveppasósu – fyrir 4 –

  • 4 kjúklingabringur (u.þ.b. 800 g)
  • kjúklingakrydd eftir smekk
  • 200 g sveppir
  • 2 msk smjör
  • 300 ml rjómi
  • 200 ml vatn
  • 1 pk Aspassúpa frá TORO
  • pipar
  • 100 g rifinn ostur

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 180°c.
  2. Gott er að skera þvert í bringurnar, sjáum dæmi hér. Steikið kjúklinginn á pönnu í 1-2 mín á hvorri hlið og kryddið með ykkar uppáhalds kjúklingakryddi (ég nota Eðal kjúklingakrydd frá Pottagöldrum). Leggið kjúklinginn til hliðar í eldfast mót.
  3. Skerið sveppina niður og steikið á pönnunni ásamt smjöri. Þegar sveppirnir eru orðnir vel steiktir hellið rjóma og vatni út á pönnuna. Takið þá písk og hellið aspassúpunni saman við og hrærið á meðan þið hellið út í og hrærið vel í 1-2 mín til að fá ekki kekki. Leyfið sósunni að krauma í 2-3 mín.
  4. Hellið þá sósunni yfir kjúklinginn og stráið rifnum osti yfir. Bakið inn í ofni í 15-20 mín.
  5. Gott er að bera réttinn fram með nýuppteknum kartöflum og fersku salati eða því sem hugurinn girnist.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert