Fljótlegi kvöldverðurinn sem krakkarnir elska

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Í minni fjölskyldu er einn réttur í sérlegu uppáhaldi hjá krökkunum og það er ítölsk grýta eða einhvers konar útgáfa af henni. Hér gefur að líta geggjaða útgáfu úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is

Ítölsk grýta með hakkbollum

Fyrir um 6 manns

Ítölsk grýta

  • Um 1 kg tilbúnar hakkbollur
  • 1.500 ml vatn
  • 2 pokar ítölsk grýta frá TORO
  • 1 box piccolotómatar
  • fersk basilika
  • salt og pipar
  • rifinn parmesanostur
  • ólífuolía til steikingar
  1. Steikið hakkbollurnar upp úr ólífuolíu og brúnið vel allar hliðar.
  2. Takið af pönnunni, hellið vatninu á hana og hrærið grýtunni saman við og leyfið að malla í um 5 mínútur.
  3. Bætið þá bollunum aftur á pönnuna ásamt tómötum og leyfið að malla saman þar til spagettíið er soðið (5-10 mínútur í viðbót).
  4. Berið fram með ferskri basilíku, rifnum parmesanosti og hvítlauksbrauði.

Hvítlauksbrauð

Um 20 sneiðar

  • 1 fínt snittubrauð
  • 150 g smjör við stofuhita
  • 3 rifin hvítlauksrif
  • 1 msk. óreganókrydd
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  1. Skerið snittubrauðið í sneiðar.
  2. Stappið smjör, hvítlauk og krydd saman í skál og smyrjið vel af smjörblöndu yfir hverja brauðsneið.
  3. Bakið við 180°C í 7-8 mínútur.
  4. Gott er að gera brauðið tilbúið áður en hafist er handa við að steikja bollurnar til þess að hægt sé að skella því í ofninn þegar grýtan mallar síðustu mínúturnar.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert