Klassískar pönnukökur eins og þær gerast bestar

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Meistari Guðrún Ýr á Döðlur & smjör deilir hér með okkur hinni fullkomnu pönnukökuuppskrift:

„Ég var að vandræðast um daginn þegar ég var að baka vöfflur og hugsaði af hverju er þetta allt í einu að flækjast fyrir mér að finna uppskrift því ég hef alltaf átt skothelda uppskrift af bæði pönnukökum og vöfflum. En þá rifjaðist það upp fyrir mér að það voru auðvitað uppskriftir geymdar í bók heima hjá mömmu og pabba.

Uppskriftirnar eru upphaflega úr Hússtjórnarbókinni sem mamma á og þeim ætla ég að deila með ykkur hér, fyrst pönnukökunum og síðar vöfflunum. Þetta er ekki síður gert fyrir mig sjálfa því það gengur auðvitað ekki að vera með uppskrift af einhverju eins mikilli klassík og vera alltaf að vandræðast hvar uppskriftin sé.

Þessa þurfið þið að pinna hjá ykkur – Hún stendur alltaf fyrir sínu!“

Pönnukökur – 20-25 stk –

  • 200 g hveiti
  • 2 msk. sykur
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. matarsódi
  • 2 egg
  • 500 ml mjólk
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 50 g smjör (eða 2½ msk olía)

Aðferð:

  1. Blandið þurrefnunum saman í skál. Þeytið saman egg og mjólk, hellið þá helmingnum af vökvanum saman við þurrefnin og hrærið þangað til kekkjalaust. Bætið restinni af mjólkinni saman við ásamt vanilludropum. Bræðið þá smjörið á pönnunni og hellið saman við.
  2. Best er að baka þunnar pönnukökur úr deiginu. Hrærið reglulega í deigið og þynnið það eftir þörf.
  3. Rúllið upp með sykri eða berið fram með því sem hugurinn girnist.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert