Jólabjórinn fyrr á ferðinni í ár

Ljósmynd/Aðsend

Þau tíðindi berast að J-dagurinn, sem markar upphaf sölu jólabjórs frá Tuborg, verði haldinn viku fyrr en venja er.

Að sögn aðstandenda J-dagsins er ástæðan sú að ÁTVR mun hefja sölu á jólabjór viku fyrr en tíðkast og vill Ölgerðin, dreifingaraðili Tuborg, því gefa veitingafólki kost á að hefja sölu nokkrum dögum fyrr eins og tíðkast hefur í áraraðir.

J-dagurinn verður haldinn föstudaginn 29. október og mun jólabjórinn byrja að renna á slaginu 20:59.

Covid hefur leikið veitingageirann grátt undanfarin misseri og er það því von framleiðanda að hinir fjölmörgu aðdáendur jólabjórsins frá Tuborg taki forskot á sæluna og fjölmenni á sölustaði og sýni þannig stuðning við greinina í verki.

J-dagurinn er að danskri fyrirmynd þar sem hann hefur verið haldinn hátíðlegur fyrsta föstudag hvers nóvembermánaðar, allt frá árinu 1981. Markar dagurinn upphaf sölu á jólabjórnum frá Tuborg á öldurhúsum og veitingastöðum landsins og er öllu til tjaldað til að skapa sem eftirminnilegasta upplifun fyrir gesti.

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert