Geggjuð taco-súpa með heimagerðu nachos

Ljósmynd/María Gomez

María Gomez á Paz.is á heiðurinn af þessari súpu sem hún segir að hafi verið stórkostlega góð! Hér er hollustan í fyrirrúmi án þess að bragðgæðunum sé fórnað á nokkurn hátt.

Algjörlega geggjuð máltíð...

Geggjuð taco-súpa með heimagerðu nachos

Hráefni

Taco-súpa

  • 2 msk. MUNA-ólífuolía
  • 1 laukur smátt skorinn
  • 3 marin hvítlauksrif
  • 500-600 g nautahakk
  • salt og pipar
  • 2 kúffullar msk. af MUNA-tómatpúrru
  • 1 rífleg msk. tacokrydd (ég notaði frá Gurmey)
  • 1 dós maísbaunir (safinn með)
  • 1 dós maukaðir tómatar
  • 1 dós nýrnabaunir (safinn með)
  • 1 msk. dökkt MUNA-agavesíróp
  • 1 dós sýrður rjómi með graslauk
  • 1 tsk. hot wing-sósa
  • 2 msk. grænmetiskraftur í duftformi
  • 2 bollar soðið vatn

Nachos 

  • 35 g sesamfræ
  • 35 g hörfræ
  • 20 g graskersfræ
  • 45 g sólblómafræ
  • 2 dl maísmjöl (glútenlaust fæst í Fræinu og Hagkaup. ATH ekki sama og maizenamjöl, þetta er frá merkinu Ma Vie)
  • 1/2 tsk. borðsalt
  • 1/2 dl extra virgin-óífuolía frá MUNA
  • 2 1/2 dl sjóðandi heitt vatn
  • gróft salt
  • þurrkaður graslaukur

Aðferð

Taco-súpa 

  1. Hitið olíuna í potti og bætið lauk og hvítlauk saman við og mýkið í olíunni. 
  2. Þegar laukarnir eru orðnir mjúkir setjið þá nautahakkið út á og saltið og piprið. 
  3. Þegar hakkið er orðið ljósbrúnt að lit setjið þá tómatpúrru og nachokrydd út á og hrærið vel inn í hakkið.
  4. Bætið næst við maukuðum tómötum og baunum og hellið safanum af báðum baunategundum með út í súpuna.
  5. Hrærið saman og bætið grænmetisoðduftinu og vatninu saman við ásamt agavesírópi og hot wing-sósu og hrærið saman. 
  6. Bætið svo sýrða rjómanum út í og látið sjóða saman í 15-20 mínútur. 
  7. Berið fram með avókadó, rifnum osti og sýrðum rjóma ásamt nachos til að mylja út í.

Nachos 

  1. Setjið fræin í blandara eða matvinnsluvél og malið þar til verður að fínu dufti.
  2. Setjið svo fræ, borðsalt og maísmjöl saman í skál og hrærið saman með skeið.
  3. Setjið því næst olíuna og hrærið hana aðeins inn í blönduna.
  4. Sjóðandi vatninu er svo hellt yfir að lokum og allt hrært saman.
  5. Setjið deigið á bökunarpappír og svo annan bökunarpappír ofan á.
  6. Byrjið á að fletja það aðeins út með flötum lófa og notið svo kökukelfi til að fletja deigið út í ferning sem er jafnstór og bökunarpappírinn.
  7. Takið næst pappírinn ofan af og setjið deigið á bökunarplötu með pappírnum sem var undir. Best er að draga pappírinn upp á plötuna, það þarf að fara varlega til að deigið leki ekki til.
  8. Saltið svo yfir allt með grófu salti og stráið þurrkuðum graslauk yfir. Ekki vera feimin við saltið og graslaukinn en mér finnst best að hafa vel af því. Passið þó að salta ekki heldur of mikið.
  9. Að lokum er gott að skera í deigið með pítsuskera í nacholagaða þríhyrninga. 
  10. Bakist í 55 mínútur við 150°C.
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert