Súper-Nachos með nautahakki og mexíkóskri ostablöndu

Ljósmynd/Gott í matinn

Nachosréttir klikka aldrei og þessi er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Mexíkósk ostablanda kryddar ekki bara réttinn góða, heldur tilveruna sömuleiðis svo nú er bara að skella í nachos og njóta!

Súper-Nachos með nautahakki og mexíkóskri ostablöndu

  • 350 g nautahakk
  • 2 msk. taco krydd
  • 1 poki nachos flögur
  • 200 g svartar baunir
  • 150 g salsasósa
  • 200 g mexíkósk ostablanda
  • kirsuberjatómatar
Eftir smekk
  • jalapeno
  • rauðlaukur
  • maísbaunir
  • sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
  • lime
  • kóríander

Aðferð:

  1. Steikið hakkið á pönnu og kryddið með taco kryddi.
  2. Raðið einu lagi af nachos flögum í fat eða ofnskúffu og setjið síðan nautahakk, svartar baunir, salsasósu og mexíkóska ostablöndu yfir allt.
  3. Endurtakið að minnsta kosti þrisvar sinnum.
  4. Endið á vænu lagi af osti yfir hakk, baunir og salsasósu.
  5. Bakið í ofni við 200°C í um 15 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og flögurnar aðeins farnar að gyllast.
  6. Skerið niður annað grænmeti á meðan, setjið yfir í lokin og berið fram með sýrðum rjóma og lime.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert