Æðisleg eplakaka með hnetum og rósmarín

Stórkostleg eplaka - gjörið svo vel!
Stórkostleg eplaka - gjörið svo vel! Mbl.is/Pinterest_Boligliv.dk

Kryddjurtir eru æðislegar til að ná fram einstöku bragði í matargerð. Hér er eplakaka með rósmarín og hnetum sem framkalla töfra fyrir bragðlaukana. Eplakaka eins og hún gerist best og þá borin fram með rjóma.

Æðisleg eplakaka með hnetum og rósmarín

  • 200 g smjör
  • 200 g sykur
  • Raspaður börkur af tveimur lime
  • 4 stór egg
  • 150 g möndlumjöl
  • 75 g hveiti
  • 1 ½ tsk lyftiduft
  • 2 tsk vanillusykur
  • 4 epli
  • 4 rósmaríngreinar
  • 50 g hakkaðar valhnetur
  • Flórsykur til að skreyta

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 180°.
  2. Pískið smjör, sykur og raspaðan lime saman – í sirka 10 mínútur.
  3. Bætið eggjunum saman við, eitt í einu.
  4. Blandið möndlumjöli saman við hveitið, lyftidufti og vanillusykri og hrærið því saman við deigið.
  5. Hellið deiginu í smelluform (22-25 cm), með smjörpappír.
  6. Skerið eplin í báta. Saxið rósmarín og veltið eplunum saman við. Dreifið eplabátunum yfir deigið í forminu og stráið hnetunum yfir.
  7. Bakið kökuna í 50 mínútur. Stingið kökunál í kökuna til að sjá hvort hún sé ekki örugglega bökuð í gegn þar sem ofnar geta verið mismunandi.
  8. Látið kólna og stráið flórsykri yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert