Kakan sem mun bæta líf þitt um 12%

Hér gefur að líta eina þá nýstárlegustu hugmynd sem sést hefur lengi. Brúnka + Rice Krispies er blanda sem getur ekki klikkað.
Uppskriftin er úr Kökubæklingi Nóa Síríus sem Linda Ben á veg og vanda að í ár.
Rice Krispies-brúnkur
  • 120 g smjör
  • 2 egg
  • 300 g sykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 100 g hveiti
  • 30 g Síríus-kakóduft
  • 90 g smjör
  • 90 ml síróp
  • 300 g Síríus-pralínsúkkulaði með saltkaramellufyllingu

Aðferð:

  1. U.þ.b. 120 g Rice Krispies eða þar til áferðin er orðin góð.
  2. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C með undir- og yfirhita.
  3. Bræðið smjörið og leyfið því að kólna.
  4. Þeytið saman egg og sykur í nokkrar mínútur þar til blandan er orðin létt og ljós og myndar borða. Hellið smjörinu út í ásamt vanilludropum og hrærið á meðan.
  5. Sigtið hveiti og kakó út í og blandið öllu vel saman með sleikju.
  6. Hellið deiginu ofan í smurt 25x35 cm form og bakið í um 15 mínútur.
  7. Bræðið saman smjör og síróp, leyfið því að malla saman við vægan hita í örfáar mínútur. Slökkvið undir pottinum.
  8. Brjótið súkkulaðið út í pottinn og bræðið saman við hægt og rólega (ætti ekki að þurfa að kveikja undir pottinum aftur, best að sleppa því).
  9. Bætið Rice Krispies út í og blandið öllu varlega saman þar til allt Rice Krispies er þakið súkkulaði.
  10. Hellið Rice Krispies-blöndunni yfir brownie-kökuna. Skerið í litla bita, u.þ.b. 15 stk., þegar kakan hefur kólnað og Rice Krispies-toppurinn harðnað.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert