Samlokan sem dugar þér út daginn

300sandwiches.com

Góðan daginn! Hér bjóðum við upp á samloku sem mun halda þér gangandi allan daginn og hentar einnig stórvel á helgarborðið þar sem hún inniheldur allt það sem þú velur þér á morgunverðarhlaðborðum.

Samlokan sem dugar þér út daginn

  • Langlokubrauð eða annars konar samlokubrauð
  • egg
  • skinka
  • ostur að eigin vali
  • tómatur
  • beikon
  • krydd að eigin vali

Aðferð:

  1. Byrjið á því að gera eggjahræru og setjið á annan brauðhelminginn.
  2. Leggið skinku, ost, tómatsneiðar og beikon ofan á.
  3. Leggið hinn helminginn af brauðhelmingnum ofan á og penslið með eggi. Kryddið og setjið inn í ofn á 180°C þar til osturinn hefur bráðnað.
Mbl.is/Tiktok_ramin2025
Mbl.is/Tiktok_ramin2025
Morgunmatur meistarans!
Morgunmatur meistarans! Mbl.is/Tiktok_ramin2025
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert