Uppskriftin sem slær alltaf í gegn

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Þessi uppskrift er fram úr hófi sniðug því hún er bæði fullkominn sem kvöldmatur og sem partýréttur. 

Litlar mexíkóvefjur henta mun betur fyrir litla fingur en stórar vefjur og því er þetta uppskrift sem krakkarnir elska. Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari úrvalsuppskrift og hafi hún ævarandi þakkir fyrir!

Litlar vefjur

30 stykki

  • 30 litlar tortilla kökur
  • 2 kjúklingabringur (eldaðar og tættar)
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 150 g gular baunir
  • 250 g salsa sósa
  • 100 g sýrður rjómi frá Gott í matinn
  • 150 g mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn
  • 50 g brætt smjör
  • Ólífuolía til steikingar
  • 2 msk. tacokryddblanda
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Eldið bringurnar og tætið niður. Það má einnig tæta niður heilan grillaðan kjúkling að hluta til.
  2. Hitið ofninn í 200°C og setjið bökunarpappír í botninn á ofnskúffu, hafið tilbúna.
  3. Saxið lauk og hvítlauk smátt niður og steikið upp úr ólífuolíu þar til mýkist, kryddið með salti og pipar eftir smekk.
  4. Bætið þá gulum baunum, rifnum kjúklingi, tacokryddi, salsa sósu og sýrðum rjóma saman við og blandið með sleif.
  5. Slökkvið á hellunni, hrærið mexíkósku ostablöndunni saman við og skiptið niður í tortillakökurnar.
  6. Rúllið þétt upp og leggið samskeytin niður í ofnskúffuna. Penslið með bræddu smjöri.
  7. Bakið í 10-12 mínútur eða þar til vefjurnar fara að dökkna aðeins í endunum.
  8. Berið fram með fersku guacamole, ostasósu og nachosflögum.

Ostasósa

  • 40 g smjör
  • 20 g hveiti
  • 300 ml nýmjólk
  • 150 g Mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið og pískið hveitið saman við, leyfið að bubbla örlitla stund.
  2. Hellið þá mjólkinni saman við og pískið vel áfram.
  3. Þegar blandan hefur náð suðu má slökkva á hellunni og píska ostinn saman við, eina lúku í senn.
  4. Njótið með stökkum nachos flögum.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert