Fimm þúsund súpuskammtar kláruðust á mettíma

Ljósmynd/Atli Þór

Óhætt er að segja að líf og fjör hafi verið síðastliðinn laugardag á Skólavörðustíg þegar fyrsta vetrardegi var fagnað. Veitinga- og verslunarmenn ásamt bændum buðu upp á sjö kjötsúpustöðvar um allan stíginn þar sem hver og einn útbjó sína útgáfu af þjóðarrétti Íslendinga.

Áætlað er að um fimm þúsund kjötsúpuskammtar hafi runnið ofan í gesti og gangandi sem kunnu vel að meta þetta árlega framtak verslunar- og veitingamanna á Skólavörðustíg með stuðningi frá íslenskum bændum. Kjötsúpudagurinn var nú haldinn í 18. sinn og á uppruna sinn að rekja til þess þegar Ófeigur Björnsson í Gullsmiðju Ófeigs og Jóhann Jónsson í Ostabúðinni leiddu saman hesta sína til að gera daginn að veruleika og vekja með því athygli á Skólavörðustíg og þeirri verslun og þjónustu sem þar er í boði. Fyrsti vetrardagur varð fyrir valinu þar sem móðir Ófeigs hafði alltaf gert kjötsúpu þann dag. Segja má að Kjötsúpudagurinn sé ein af fyrstu sjálfssprottnu hátíðunum í miðbænum sem hefur laðað að gesti og gangandi en árlega kemur mikill fjöldi til að bragða á hinum ýmsu tegundum af íslenskri kjötsúpu.

„Við erum í skýjunum með þennan dag og viðtökurnar sem við fengum á öllum súpustöðvunum. Það var mikið þakklæti hjá Íslendingum og erlendu ferðmönnunum sem áttu leið hjá og nú sem fyrr kláruðust allir súpuskammtarnir töluvert fyrir auglýstan lokunartíma svo fólk kann vel að meta þetta framtak. Örlítill rigningarskúr sem kom á tímabili virtist ekki hafa mikil áhrif og var almenn ánægja með fjölbreytni á kjötsúpustöðvunum,“ segir Gústav Axel Gunnlaugsson, veitingamaður á Sjávargrillinu.

„Við hvetjum auðvitað Íslendinga til að elda kjötsúpu heima á næstunni í öllum þeim útgáfum sem leynast í eldhúsum landsmanna, og fólk haldi þessari hefð okkar á lofti um ókomin ár. Matarmenningin okkar er auðlind sem við þurfum að hlúa að og kynna fyrir ungu fólki og erlendum gestum,“ segir Hafliði Halldórsson verkefnastjóri hjá Bændasamtökum Íslands.

Ljósmynd/Atli Þór
Ljósmynd/Atli Þór
Ljósmynd/Atli Þór
Ljósmynd/Atli Þór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert