Bjóða upp á hræðilegan ís

Ísmeistararnir í Omnom hafa galdrað fram enn eina ís-snilldina en að þessu sinni er það ísrétturinn Varúlfurinn í Svartaskógi - sem er að þeirra sögn hrekkjavöku ísdesert Omnom í ár.

Innblásturinn kemur frá hinni margrómuðu súkkulaðitertu frá Svartaskógi í Þýskalandi og er ísrétturinn sagður algjört ævintýri fyrir bragðlaukana.

Ísinn innihelkdur mjúka súkkulaði brownie, kirsuberja-balsamik sultu og ferskan mjúkís en ísinn verður fáanlegur í ísbúð Omnom til 1. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert