Ný grísk jógúrt komin í verslanir

Ljósmynd/MS

Grísk jógúrt nýtur mikilla vinsælda hér á landi og nú er komin ný vara í léttmálsvörulínu MS sem er grísk jógúrt með súkklaðiflögum.

Jógúrtin er létt og mild og inniheldur 11 grömm af próteinum í hverri dós. Hún á efalaust eftir að vekja athygli meðal neytenda því hún er einstaklega bragðgóð og inniheldur einungis 4% viðbættan sykur. Nýja gríska jógúrtin með súkkulaðiflögum er handhægur og bragðgóður réttur sem létt er að grípa og neyta hvar og hvenær sem er, segir í fréttatilkynningu og búast má við að nýja jógúrtin fái góðar viðtökur.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert