Súkkulaðigranóla með hreinni grískri jógúrt

Ljósmynd/Helena Gunnars

Nú er hægt að fá hreina gríska jógúrt í 500 ml umbúðum. Grísk jógúrt er vinsæl hér á landi enda  einstaklega létt, mjúk og bragðgóð og smakkast því vel ein sér og ekki síður þegar hún er borin fram með ávöxtum, berjum og múslí. Það er Helena Gunnarsdóttir sem útbjó þessa skemmtilegu skál sem bragðast eins og sælgæti.

„Ég er kolfallin fyrir nýju grísku jógúrtinni. Hún er að mínu mati fullkomin, einstaklega létt en samt rjómakennd. Virkilega ánægjuleg viðbót í jógúrtflóruna. Ef þið hafið ekki prófað að útbúa heimalagað granóla mæli ég innilega með að gera það hið snarasta. Það er bæði sáraeinfalt og svo ljúffengt. Svo gerir súkkulaði allt gott eins og allir vita,“ segir Helena og við erum hjartanlega sammála.

Súkkulaðigranóla með hreinni grískri jógúrt

  • 7 dl haframjöl
  • 3 dl möndluflögur
  • 1 1/2 dl kókosmjöl
  • 1 dl hreint kakóduft
  • 2 msk. hrásykur
  • smá klípa sjávarsalt
  • 100 gr brætt smjör
  • 2 msk. hlynsíróp
  • 1 tsk. vanilluextract
  • 2 dl súkkulaðidropar eða saxað súkkulaði

Meðlæti:

  • hrein Léttmáls grísk jógúrt
  • ávextir og/eða ber að eigin vali

Aðferð:

1. Hitið ofn í 130 gráður með blæstri.

2. Hrærið öllum þurrefnum saman í skál.

3. Bræðið smjörið í potti, takið af hitanum og hrærið vanillu og hlynsírópi saman við.

4. Hellið smjörblöndunni yfir þurrefnin og blandið öllu vel saman.

5. Leggið bökunarpappír í ofnskúffu og dreifið úr blöndunni.

6. Bakið í ofni í eina klukkustund. Hrærið í blöndunni einu sinni til tvisvar yfir bökunartímann.

7. Takið úr ofninum og dreifið súkkulaðinu strax yfir.

8. Setjið til hliðar og látið kólna alveg.

9. Geymist vel í lokaðri krukku í tvær vikur.

10. Berið fram með hreinni Léttmáls grískri jógúrt og ávöxtum.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ljósmynd/Helena Gunnars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert