Tóku brúðarmyndirnar á Subway

Samloka á sæludaginn!
Samloka á sæludaginn! Mbl.is/NIC ANTAYA/AP IMAGES FOR SUBWAY

Sumir finna ástina í mat á meðan aðrir finna ástina á matsölustað – eins og þetta par hér.

Hér er um enga venjulega ástarsögu að ræða, en Julie Bushart og  Zack Williams voru á sama tíma inn á Subway stað í Michigan að borða hádegismat, þann 7. desember 2017. Móðir Juliu var með henni þennan umrædda dag og hvatti dóttur sína til að heilsa upp á þennan myndarlega mann sem sat þarna rétt eins og þau að borða, en hún þorði því ekki. Móðirin tók því málin í sínar hendur og gaf bláókunnugum manni, símanúmerið hjá dóttur sinni. Hálftíma síðar hringdi hann í Julie og þau fóru á fyrsta stefnumótið sem endaði með brúðkaupi fjórum árum seinna – eða í síðast liðnum október.

Eftir að Zack fór á skeljarnar, þá hafði hann samband við Subway og sagði þeim sögu þeirra. Samlokukeðjan bauð þeim nætursnarl fyrir alla gesti í brúðkaupinu sem og brúðarmyndatöku í Subway sportbíl. Hver myndi ekki vilja það á stóra daginn! Við erum þó mest forvitin að vita hvað þau fengu sér á bátana. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert