Helgarmaturinn sem gulltryggir góða helgi

Ljósmynd/Árni Þór Arnórsson

Hér erum við með dýrindis lambakjötsrétt sem á eiginlega alltaf vel við. Höfundur uppskriftar er Árni Þór Arnórsson en eins og sjá má er þessi uppskrift bæði bragðmikil og góð.

Lambakjöt í rjómaosti og kotasælu

Fyrir fjóra

  • 1 kg lambakjöt (best að nota lundir eða fituhreinsað fillet)
  • salt og svartur pipar
  • 1 msk. rósmarín
  • 250 g sveppir
  • 100 g kúrbítur
  • 100 g rauðlaukur
  • 100 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
  • 400 g rjómaostur frá Gott í matinn
  • 2 dósir kotasæla
  • 1 krukka Dala salatostur að eigin vali
  • 3 stk. hvítlauksgeirar (2-3), pressaðir

Aðferð:

  1. Brúnið kjötið á pönnu og kryddið með rósmarín, salti og svörtum pipar.
  2. Setjið svo í eldfast mót.
  3. Skerið grænmetið í bita og steikið á pönnunni.
  4. Hellið yfir kjötið.
  5. Stráið sólþurrkuðum tómötum yfir.
  6. Hrærið saman kotasæluna og rjómaostinn með hvítlauknum.
  7. Smyrjið yfir kjötið og grænmetið.
  8. Myljið fetaostinn yfir og bakið í ofni við 170°C í um 20 mínútur.
  9. Berið fram með fersku salati og góðu brauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert