Lambalæri eins og þú hefur aldrei smakkað það

Ljósmynd/Tinna Alavis

Þetta er ein girnilegasta lambakjöts uppskrift sem við höfum séð lengi og það er engin önnur en Tinna Alavis sem á heiðurinn að henni. Við erum að tala um lúxus lambalæri með stökkum parmesanhjúp, fyllt með sveppum og allskyns gúmmelaði. Einnig er uppskrift að Waldorf salati og við getum ekki beðið eftir að prófa þessa dýrð.

Lúxus lambalæri með stökkum parmesanhjúp og fyllingu

Uppskrift:

  • lambalæri
  • Hvítlaukur
  • Íslenskt smjör
  • Hvítvín

Fylling:

  • 500 g sveppir
  • 1 laukur
  • 50 g íslenskt smjör
  • 1 msk. steinselja
  • 1 msk. timian‍

Parmesan hjúpur:

  • 400 g góður parmesanostur (saxaður í matvinnsluvél)
  • 50 g íslenskt smjör

‍Aðferð:

  1. Hitið  ofninn í 180°C. Ég nota blástur.
  2. Setjið lærið í stóran steikingarpott.
  3. Bræðið 250 g af íslensku smjöri í litlum potti.
  4. Takið heilan hvítlauk og kremjið hvern geira fyrir sig. Saxið svo smátt og setjið út í smjörið.
  5. Látið malla í stutta stund og hellið þessu yfir lærið.
  6. Takið 2 dl af hvítvíni og setjið í botninn á steikingarpottinum.
  7. Látið lærið eldast í 1 klst og takið það þá út úr ofninum.
  8. Á meðan er allt sem fer í fyllinguna steikt á pönnu þar til hefur brúnast.
  9. Setjið fyllinguna í matvinnsluvél eða saxið allt smátt.
  10. Skerið í kjötið niður að beini og látið sirka 4 cm vera á milli.
  11. Setjið fyllinguna í rifurnar.
  12. Bræðið smjörið og parmesanostinn saman í potti og sejið yfir lærið.
  13. Setjið kjötið aftur inn í ofn þar til kjöthitamælirinn sýnir 55°C fyrir lítið steikt, 60-65°C fyrir meðalsteikt og 70-75°C fyrir gegnsteikt.

Waldorfsalat:

  • 2 dl rjómi
  • 180g sýrður rjómi
  • 2 epli
  • 20 stk vínber (mér finnst fallegt að hafa bæði græn og rauð)
  • 1/2 stilkur sellerí
  • 1 dl saxaðar valhnetur‍

Aðferð:

  1. Þeytið rjómann
  2. Blandið sýrða rjómanum saman við.
  3. Flysjið eplin og skerið þau í litla bita
  4. Skerið sellerí í litla bita
  5. Skerið vínberin í tvennt
  6. Brjótið valhneturnar í tvennt
  7. Blandið öllu vel saman
  8. Geymið í kæli þar til Waldorfsal­atið er borið fram
Ljósmynd/Tinna Alavis
Ljósmynd/Tinna Alavis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert