Þrjár nýjungar á markað frá Nóa-Síríusi

Sælkerar landsins geta svo sannarlega glaðst þessa dagana því nýjungarnar streyma á markaðinn beint af færibandinu hjá Nóa-Síríusi. Í þetta skiptið eru það hnappar með piparmyntufyllingu, konfekthnappar með ljúffengum karamelluristuðum núggatínmöndlum að ógleymdum pralínmolaöskjunum sem snúa aftur með tvo nýja mola í farteskinu, með jarðarberja- og kirsuberjafyllingu. Það kætast eflaust margir við þær fréttir því svo skemmtilega vill til að það eru einmitt bragðtegundirnar sem margir söknuðu eftir að þær hurfu úr konfektkössunum.

Alda Björk Larsen, markaðsstjóri Nóa-Síríusar, segir að vöruþróun sé eitt af grunnstefjunum í starfsemi fyrirtækisins. „Við leitum stöðugt leiða til að koma til móts við viðskiptavini okkar með nýjungum og erum mjög stolt af þessum vörum sem nú koma nýjar á markaðinn. Að auki gleður það okkur sérstaklega að geta glatt þá fjölmörgu sem söknuðu konfektmolanna með jarðarberja- og kirsuberjafyllingunum en þeir bætast nú við pralínkassana sem innihalda einnig mola með kókos-, núggat-, karamellu- og appelsínufyllingu,“ segir Alda og bætir við að nýju hnapparnir séu líka ótrúlega gómsæt viðbót í vöruframboðið.

Hnapparnir með piparmyntufyllingunni eru úr dökku súkkulaði og afar hátíðlegir. Ekki skemmir svo fyrir að þeir eru vegan. Konfekthnapparnir með karamelluristuðum núggatínmöndlum koma svo í þremur ljúffengum bragðtegundum: hefðbundnu rjómasúkkulaði, rjómasúkkulaði með appelsínubragði og rjómasúkkulaði með karamellubragði. Þeir bætast við gömlu góðu hnappana með karamellu og perluhnappana sívinsælu og má því með sanni segja að allir súkkulaðiunnendur ættu að geta haft sínum hnöppum að hneppa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert